diff --git "a/train.txt" "b/train.txt" new file mode 100644--- /dev/null +++ "b/train.txt" @@ -0,0 +1,5328 @@ +### ÍSLAND + +Ísland, farsældafrón + og hagsælda, hrímhvíta móðir! +Hvar er þín fornaldarfrægð, + frelsið og manndáðin bezt? + +Allt er í heiminum hverfult, + og stund þíns fegursta frama +lýsir sem leiftur um nótt + langt fram á horfinni öld. + +Landið var fagurt og frítt + og fannhvítir jöklanna tindar, +himinninn heiður og blár, + hafið var skínandi bjart. + +Þá komu feðurnir frægu + og frjálsræðishetjurnar góðu +austan um hyldýpishaf, + hingað í sælunnar reit. + +Reistu sér byggðir og bú + í blómguðu dalanna skauti, +ukust að íþrótt og frægð, + undu svo glaðir við sitt. + +Hátt á eldhrauni upp, + þar sem ennþá Öxará rennur +ofan í Almannagjá, + alþingið feðranna stóð. + +Þar stóð hann Þorgeir á þingi, + er við trúnni var tekið af lýði. +Þar komu Gissur og Geir, + Gunnar og Héðinn og Njáll. + +Þá riðu hetjur um héruð, + og skrautbúin skip fyrir landi +flutu með fríðasta lið, + færandi varninginn heim. + +Það er svo bágt að standa í stað, + og mönnunum munar +annaðhvort aftur á bak + ellegar nokkuð á leið. + +Hvað er þá orðið okkar starf + í sex hundruð sumur? +Höfum við gengið til góðs + götuna fram eftir veg? + +Landið er fagurt og frítt + og fannhvítir jöklanna tindar, +himinninn heiður og blár, + hafið er skínandi bjart. + +En á eldhrauni upp, + þar sem ennþá Öxará rennur +ofan í Almannagjá, + alþing er horfið á braut. + +Nú er hún Snorrabúð stekkur, + og lyngið á Lögbergi helga +blánar af berjum hvert ár, + börnum og hröfnum að leik. + +Ó, þér unglinga fjöld + og Íslands fullorðnu synir! +Svona er feðranna frægð + fallin í gleymsku og dá! + +### GUNNARSHÓLMI + +Skein yfir landi sól á sumarvegi, + og silfurbláan Eyjafjallatind + gullrauðum loga glæsti seint á degi. +Við austur gnæfir sú hin mikla mynd + hátt yfir sveit, og höfði björtu svalar + í himinblámans fagurtærri lind. +Beljandi foss við hamrabúann hjalar + á hengiflugi undir jökulrótum, + þar sem að gullið geyma Frosti og Fjalar. +En hinum megin föstum standa fótum, + blásvörtum feldi búin, Tindafjöll + og grænu belti gyrð á dalamótum. +Með hjálminn skyggnda, hvítri líkan mjöll, + horfa þau yfir heiðarvötnin bláu, + sem falla niður fagran Rangárvöll, +þar sem að una byggðarbýlin smáu, + dreifð yfir blómguð tún og grænar grundir. + Við norður rísa Heklu tindar háu. +Svell er á gnípu, eldur geisar undir. + Í ógna djúpi, hörðum vafin dróma, + skelfing og dauði dvelja langar stundir. +En spegilskyggnd í háu lofti ljóma + hrafntinnuþökin yfir svörtum sal. + Þaðan má líta sælan sveitablóma, +því Markarfljót í fögrum skógardal + dunar á eyrum. Breiða þekur bakka + fullgróinn akur, fagurst engjaval +þaðan af breiðir hátt í hlíðarslakka + glitaða blæju, gróna blómum smám. + Klógulir ernir yfir veiði hlakka, +því fiskar vaka þar í öllum ám. + Blikar í lofti birkiþrasta sveimur, + og skógar glymja, skreyttir reynitrjám. +Þá er til ferðar fákum snúið tveimur, + úr rausnargarði háum undir Hlíð, + þangað sem heyrist öldufalla eimur, +því atgang þann ei hefta veður blíð, + sem voldug reisir Rán á Eyjasandi, + þar sem hún heyir heimsins langa stríð. +Um trausta strengi liggur fyrir landi + borðfögur skeið, með bundin segl við rá, + skínandi trjóna gín mót sjávar grandi. +Þar eiga tignir tveir að flytjast á, + bræður, af fögrum fósturjarðar ströndum + og langa stund ei litið aftur fá, +fjarlægum ala aldur sinn í löndum, + útlagar verða, vinar augum fjær. + Svo hafa forlög fært þeim dóm að höndum. +Nú er á brautu borinn vigur skær + frá Hlíðarenda hám, því Gunnar ríður + atgeirnum beitta búinn. Honum nær +dreyrrauðum hesti hleypir gumi, fríður + og bláu saxi gyrður, yfir grund. + Þar mátti kenna Kolskegg allur lýður. +Svo fara báðir bræður enn um stund. + Skeiðfráir jóar hverfa fram að fljóti. + Kolskeggur starir út á Eyjasund, +en Gunnar horfir hlíðarbrekku móti. + Hræðist þá ekki frægðarhetjan góða + óvina fjöld, þó hörðum dauða hóti. +"Sá ég ei fyrr svo fagran jarðargróða, + fénaður dreifir sér um græna haga, + við bleikan akur rósin blikar rjóða. +Hér vil eg una ævi minnar daga + alla, sem guð mér sendir. Farðu vel, + bróðir og vinur!" - Svo er Gunnars saga. + + * + +Því Gunnar vildi heldur bíða hel +en horfinn vera fósturjarðar ströndum. +Grimmlegir fjendur, flárri studdir vél, +fjötruðu góðan dreng í heljar böndum. +Hugljúfa samt ég sögu Gunnar tel, +þar sem ég undrast enn á köldum söndum +lágan að sigra ógnabylgju ólma +algrænu skrauti prýddan Gunnarshólma. +Þar sem að áður akrar huldu völl, +ólgandi Þverá veltur yfir sanda. +Sólroðin líta enn hin öldnu fjöll +árstrauminn harða fögrum dali granda. +Flúinn er dvergur, dáin hamratröll, +dauft er í sveitum, hnípin þjóð í vanda. +En lágum hlífir hulinn verndarkraftur, +hólmanum, þar sem Gunnar sneri aftur. + +### TIL HERRA PÁLS GAIMARD + +Þú stóðst á tindi Heklu hám +og horfðir yfir landið fríða, +þar sem um grænar grundir líða +skínandi ár að ægi blám. +En Loki bundinn beið í gjótum +bjargstuddum undir jökulrótum. - +Þótti þér ekki Ísland þá +yfirbragðsmikið til að sjá? + +Þú reiðst um fagran fjalladal +á fáki vökrum, götu slétta, +þar sem við búann brattra kletta +æðandi fossar eiga tal, +þar sem að una hátt í hlíðum +hjarðir á beit með lagði síðum. - +Þótti þér ekki Ísland þá +íbúum sínum skemmtan ljá? + +Þú komst á breiðan brunageim +við bjarta vatnið fiskisæla, +þar sem vér áður áttum hæla +fólkstjórnarþingi, frægu um heim. +Nú er þar þrotin þyrping tjalda, +þögult og dapurt hraunið kalda. - +Þótti þér ekki Ísland þá, +alþingi svipt, með hrellda brá? + +Nú heilsar þér á Hafnar slóð +heiman af Fróni vina flokkur. +Við vitum glöggt, að anntu okkur, +frakkneskur maður, frjálsri þjóð, +því andinn lifir æ hinn sami, +þótt afl og þroska nauðir lami. +Menntanna brunni að bergja á +bezta skal okkur hressing ljá! + +Vísindin efla alla dáð, +orkuna styrkja, viljann hvessa, +vonina glæða, hugann hressa, +farsældum vefja lýð og láð. +Tífaldar þakkir því ber færa +eim, sem að guðdómseldinn skæra +akið og glætt og verndað fá +izkunnar helga fjalli á. + +Þvílíkar færum þakkir vér +þér, sem úr fylgsnum náttúrunnar +gersemar, áður aldrei kunnar, +með óþrjótanda afli ber. +Heill sér þér, Páll, og heiður mestur! +Hjá oss sat aldrei kærri gestur. +Alvaldur greiði æ þinn stig! +Ísland skal lengi muna þig. + +### HULDULJÓÐ + +Skáld er ég ei, en huldukonan kallar +og kveða biður hyggjuþungan beim. +Mun ég því sitja, meðan degi hallar +og mæddur smali fénu kemur heim, +þar sem að háan hamar fossinn skekur +og hulduþjóð til næturiðju vekur. + +Þrumi eg á bergi, þýtur yfir hjalla +þokan að hylja mig og kaldan foss. +Nú skal úr hlíðum hárra Tinnufjalla, +svo huldumeyjar þægan vinni koss, +óbrotinn söngur yfir dalinn líða +eins og úr holti spóaröddin þýða. + +Þú, sem að byggir hamrabýlin háu, +hjartanu mínu alla daga kær, +sólfagra mey, djúpt undir bergi bláu, +bústu að sitja vini þínum nær. +Döggsvalur úði laugar lokkinn bleika, +ljós er af himni, næturmyndir reika. + +Hvers er að dyljast? Harma sinna þungu. +Hlægja þeir öld, er ræður þeim ei bót. +Hvers er að minnast? Hins, er hverri tungu, +huganum í svo festa megi rót, +ætlanda væri eftir þeim að ræða, +sem orka mætti veikan lýð að fræða. + +Að fræða! Hver mun hirða hér um fræði? +Heimskinginn gerir sig að vanaþræl. +Gleymd eru lýðnum landsins fornu kvæði. +Leirburðarstagl og holtaþokuvæl +fyllir nú breiða byggð með aumlegt þvaður. +Bragðdaufa rímu þylur vesall maður. + +Háðungarorð, sem eyrun Huldu særa, +ei skulu spilla ljóði voru meir. +Sendið þér annan, sanninn heim að færa +söngvurum yðar, Njörður, Þór og Freyr! +Og hver sá ás, sem ata þeir í kvæði, +eirðinni gleymi og hefni sín í bræði. + +Sólfagra mey! Ég sé - nú leit minn andi +þanns seglið vatt í byrnum undan Skor +og aldrei síðan aftur bar að landi. +Eggert, ó, hyggstu þá að leita vor? +Marblæju votri varpar sér af herðum +vandlætishetjan, sterkum búin gerðum. + +Hvað er í heimi, Hulda, líf ag andi, +hugsanir drottins sálum fjær og nær, +þar sem að bárur brjóta hval á sandi, +í brekku, þar sem fjallaljósið grær, +þar sem að háleit hugmynd leið sér brýtur. +Hann vissi það, er andi vor nú lítur. + +Ó, Eggert! Þú varst ættarblóminn mesti +og ættarjarðar þinnar heill og ljós. +Blessuð sú stund, er fót hann aftur festi +á frjórri grund við breiðan sævarós. +Sólfagra mey! Hann svipast um með tárum, +saltdrifin hetja, stigin upp af bárum. + +Hví er inn sterki úr hafi bláu genginn +á hauður, sem í nætur faðmi þreyr? +Veit ég, að þegar værðin góða er fengin, +vinirnir gleyma að birtast framar meir. +Ó, hve hann hefur eftir þráð að líta +ástarland sitt með tignarfaldinn hvíta. + +Tárperlur bjartar titra þér í augum, +tindra þær gegnum fagurt lokkasafn. +sólfagra mey, því sjónar þinnar baugum +séður er aldrei kappi þessum jafn. +Þú elskar, Hulda, Eggert, foldar blóma, +ættjarðar minnar stoð og frænda sóma. + +Ó, Eggert, hversu er þinn gangur fagur! +Útivist þín er vorðin löng og hörð. +Kær er mér, faðir, komu þinnar dagur. +Hann kyssir, Hulda, þína fósturjörð. +Sólfagra mey! Hann svipast um með tárum. +saltdrifin hetja, stigin upp af bárum. + +Þú elskar hann - þess ann ég honum glaður. +Ástin er rík, og þú ert hennar dís. +Hér vil ég sitja, hér er okkar staður, +ó, Hulda, þar til sól úr ægi rís. +Hallaðu lokkahöfði bjarta þínu, +mín Hulda kær, að vinarbrjósti mínu. + +Hann svipast um. Nú sefur allt í landi. +Svæft hefur móðir börnin stór og smá, +fífil í haga, hrafn á klettabandi, +hraustan á dúni, veikan fjölum á. +Hann svipast um í svölum næturvindi +um sund og völl að háum fjallatindi. + +Hallaðu lokkahöfði bjarta þínu +að hjarta mér, sem nú er glatt og traust. +Hallaðu þér nú hægt að brjósti mínu. +Hann hefur ekki starfað notalaust. +Seint og að vonum svo fær góður njóta +sín og þess alls, er vann hann oss til bóta. + +Hann líður yfir ljósan jarðargróða. +Litfögur blóm úr værum næturblund +smálíta upp að gleðja skáldið góða. +Gleymir hann öðru og skoðar þau um stund. +Nú hittir vinur vin á grænu engi: +"Velkominn, Eggert! Dvelstu með oss lengi!" + + + EGGERT: + +Smávinir fagrir, foldarskart, +fífill í haga, rauð og blá +brekkusóley, við mættum margt +muna hvort öðru að segja frá. +Prýðið þér lengi landið það, +sem lifandi guð hefur fundið stað +ástarsælan, því ástin hans +allstaðar fyllir þarfir manns. + +Vissi ég áður voruð þér, +vallarstjörnur um breiða grund, +fegurstu leiðarljósin mér. +Lék ég að yður marga stund. +Nú hef ég sjóinn séð um hríð +og sílalætin smá og tíð. - +Munurinn raunar enginn er, +því allt um lífið vitni ber. + +Faðir og vinur alls, sem er, +annastu þennan græna reit. +Blessaðu, faðir, blómin hér, +blessaðu þau í hverri sveit. +Vesalings sóley, sérðu mig? +Sofðu nú vært og byrgðu þig. +Hægur er dúr á daggarnótt. +Dreymi þig ljósið, sofðu rótt! + +Smávinir fagrir, foldarskart, +finn ég yður öll í haganum enn. +Veitt hefur Fróni mikið og margt +miskunnar faðir. En blindir menn +meta það aldrei eins og ber, +unna því lítt, sem fagurt er, +telja sér lítinn yndisarð +að annast blómgaðan jurtagarð. + +* + +Hulda! Hví grípa hendur þínar ljósu +um hendur mér, og hví svo viknar þú? +Veit ég þú elur eyrar fagra rósu, +alsett er rauðum blómum Huldubú. +Eggert er þér um ekki neitt að kenna, +annazt hefurðu fjallareitinn þenna. + +Sjáðu, enn lengra svífur fram um völlu +svásúðleg mynd úr ungum blómareit, +sterkur og frjáls og fríður enn að öllu +Eggert að skoða gengur byggða sveit. +Hann fer að sjá, hve lífi nú á láði +lýðurinn uni, sá er mest hann þráði. + +Brosir við honum bærinn heillagóði +í brekkukorni, hreinn og grænn og smár. +Þar hefur búið frændi hans með fljóði +í flokki ljúfra barna mörg um ár. +Þar hefur sveitasælan guðs í friði +og sóminn aukizt glöðu bæjarliði. + +Þar hefur gerzt að fullum áhrínsorðum +allt, sem hinn vitri bóndavinur kvað +um dalalíf í Búnaðarbálki forðum, +um bóndalíf, sem fegurst verður það. +Sólfagra mey! Nú svífur heim að ranni +sæbúinn líkur ungum ferðamanni. + + + SMALI FER AÐ FÉ OG KVEÐUR: + +Það var hann Eggert Úlafsson, +ungur og frár og vizkusnjall, +stóð hann á hauðri studdur von. +Stráunum skýldi vetrarfall. +Meðan að sól í heiði hló, +hjúkraði laukum, eyddi snjó, +kvað hann um fold og fagra mey +fagnaðarljóð, er gleymist ei. + +Kvað hann um blóma hindarhjal +og hreiðurbúa lætin kvik, +vorglaða hjörð í vænum dal +og vatnareyðar sporðablik. +Þó kvað hann mest um bóndabæ, +er blessun eflir sí og æ, +af því að hjónin eru þar +öðrum og sér til glaðværðar. + +Það var hann Eggert Ólafsson, +allir lofa þann snilldarmann. +Ísland hefur ei eignazt son +öflgari stoð né betri en hann. +Þegar hann sigldi sjóinn á, +söknuður vætti marga brá. +Nú er hann kominn á lífsins láð +og lifir þar sæll fyrir drottins náð. + + + NIÐURLAG + +Sólfagra mey! Nú seilist yfir tinda +úr svölum austurstraumum roði skær. +Nú líður yfir láð úr höllu vinda +léttur og hreinn og þýður morgunblær. +Svo var mér, Hulda, návist þín á nóttu +sem nú er ljósið jörð á votri óttu. + +Vertu nú sæl! Þótt sjónum mínum falin +sértu, ég alla daga minnist þín. +Vertu nú sæl! Því dagur fyllir dalinn, +dunandi fossinn kallar þig til sín. +Hann breiðir fram af bergi hvítan skrúða, +bústaður þinn er svölum drifinn úða. + +Vertu nú sæl! Því sólin hálsa gyllir +og sjónir mínar hugarmyndin flýr. +Ó, Hulda kær, er fjöll og dali fyllir +fjölbreyttu smíði, hvar sem lífið býr +og dauðinn, sem að svo þig löngum kallar +sá, er þig aldrei leit um stundir allar. + +### FJALLIÐ SKJALDBREIÐUR + +Fanna skautar faldi háum +fjallið, allra hæða val, +hrauna veitir bárum bláum +breiðan fram um heiðardal. +Löngu hefur Logi reiður +lokið steypu þessa við. +Ógnaskjöldur bungubreiður +ber með sóma réttnefnið. + +Ríð ég háan Skjaldbreið skoða, +skín á tinda morgunsól, +glöðum fágar röðulroða +reiðarslóðir, dal og hól. +Beint er í norður fjallið fríða. +Fákur eykur hófaskell. +Sér á leiti Lambahlíða +og litlu sunnar Hlöðufell. + +Vel á götu ber mig Baldur. +Breikkar stirnað eldasund. +Hvenær hefur heims um aldur +hraun það brunað fram um grund? +Engin þá um Ísafoldu +unað hafa lífi dýr. +Enginn leit þá maður moldu, +móðu steins er undir býr. + +Titraði jökull, æstust eldar. +Öskraði djúpt í rótum lands, +eins og væru ofan felldar +allar stjörnur himnaranns, +eins og ryki mý eða mugga, +margur gneisti um loftið fló. +Dagur huldist dimmum skugga, +dunaði gjá og loga spjó. + +Belja rauðar blossa móður, +blágrár reykur yfir sveif, +undir hverfur runni, rjóður, +reynistóð í hárri kleif. +Blómin ei þá blöskrun þoldu, +blikna hvert í sínum reit, +höfði drepa hrygg við moldu. +Himna drottinn einn það leit. + +Vötnin öll, er áður féllu +undan hárri fjallaþröng, +skelfast, dimmri hulin hellu, +hrekjast fram um undirgöng. +Öll þau hverfa að einu lóni, +elda þar sem flóði sleit. +Djúpið mæta, mest á Fróni, +myndast á í breiðri sveit. + +Kyrrt er hrauns á breiðum boga, +blundar land í þráðri ró. +Glaðir næturglampar loga, +geislum sá um hæð og mó. +Brestur þá og yzt með öllu +í undirhvelfing hraunið sökk. +Dunar langt um himinhöllu. +Hylur djúpið móða dökk. + +Svo er treyst með ógn og afli +alþjóð minni helgað bjarg. +Breiður, þakinn bláum skafli, +bundinn treður foldarvarg. +Grasið þróast grænt í næði, +glóðir þar sem runnu fyrr. +Styður völlinn bjarta bæði +berg og djúp. Hann stendur kyrr. + +Hver vann hér svo að með orku? +Aldrei neinn svo vígi hlóð. +Búinn er úr bálastorku +bergkastali frjálsri þjóð. +Drottins hönd þeim vörnum veldur. +Vittu, barn, sú hönd er sterk. - +Gat ei nema guð og eldur +gjört svo dýrðlegt furðuverk. + +Hamragirðing há við austur +Hrafna- rís úr breiðri -gjá. +Varnameiri veggur traustur +vestrið slítur bergi frá. +Glöggt ég skil, hví Geitskór vildi +geyma svo hið dýra þing. +Enn þá stendur góð í gildi +gjáin, kennd við almenning. + +Heiðarbúar! glöðum gesti +greiðið för um eyðifjöll! +Einn ég treð með hundi og hesti +hraun - og týnd er lestin öll. +Mjög þarf nú að mörgu að hyggja, +mikið er um dýrðir hér! +Enda skal ég úti liggja, +engin vættur grandar mér. + +### DALVÍSA + +Fífilbrekka, gróin grund, +grösug hlíð með berjalautum, +flóatetur, fífusund, +fífilbrekka, smáragrund! +Yður hjá ég alla stund +uni bezt í sæld og þrautum, +fífilbrekka, gróin grund, +grösug hlíð með berjalautum! + +Gljúfrabúi, gamli foss, +gilið mitt í klettaþröngum, +góða skarð með grasa hnoss, +gljúfrabúi, hvítur foss! +Verið hefur vel með oss, +verða mun það ennþá löngum, +gljúfrabúi, gamli foss, +gilið mitt í klettaþröngum! + +Bunulækur blár og tær, +bakkafögur á í hvammi, +sólarylur, blíður blær, +bunulækur fagurtær, +yndið vekja ykkur nær +allra bezt í dalnum frammi, +bunulækur blár og tær, +bakkafögur á í hvammi! + +Hnjúkafjöllin himinblá, +hamragarðar, hvítir tindar, +heyjavöllinn horfið á, +hnjúkafjöllin hvít og blá! +Skýlið öllu, helg og há, +hlífið dal, er geisa vindar, +hnjúkafjöllin himinblá, +hamragarðar, hvítir tindar! + +Sæludalur, sveitin bezt! +Sólin á þig geislum helli, +snemma risin, seint þó setzt. +Sæludalur, prýðin bezt! +Þín er grundin gæðaflest, +gleðin æsku, hvíldin elli. +Sæludalur, sveitin bezt, +sólin á þig geislum helli. + +### VORVÍSA + +Tinda fjalla, +áður alla +undir snjá, +sín til kallar sólin há, +leysir hjalla, +skín á skalla, +skýi sem að brá +og sér fleygði frá. + +Tekur buna +breið að duna +björgum á. +Græn því una grundin má. +Viður hruna +vatna funa +vakna lauf og strá. +Seinna seggir slá. + +Snjórinn eyðist, +gata greiðist. +Gumar þá, +ef þeim leiðist, leggja á, +hleypa skeið +og herða reið +og hrinda vetri frá. - +Hverfur dimmu dá. + +Prúðir sækja +lón og læki +laxar þá. +Sumir krækja silungsá. +Veiðitækir, +sporðasprækir, +spretti hörðum á +fjalli fýsast ná. + +Fjaðraléttir +flokkar þéttir +fugla þá +synda ettir sumará, +eða mettir +strönd og stéttir +stika til og frá, +kæta loft og lá. + +Ærin ber +og bærinn fer +að blómgast þá. +Leika sér þar lömbin smá. +Nú er í veri +nóg að gera, +nóttu bjartri á +hlutir hækkað fá. + +Grænkar stekkur. +Glöð í brekku +ganga kná +börnin þekku bóli frá. +Kreppir ekki +kuldahlekkur, +kætist fögur brá, +búa blómum hjá. + +Rennur sunna. +Sveinn og nunna +sér við brá. +Sízt þau kunna sofa þá. +Sælt er að unnast. +Mjúkum munni +málið vaknar á, +fegurst höldum hjá. + +Ekkert betra +eg í letri +inna má. +Svo er vetri vikið frá. +Uni fleti +hver, sem getur, +heimskum gærum á. +Önnur er mín þrá. + +### ÍSLANDSMINNI + +Þið þekkið fold með blíðri brá +og bláum tindi fjalla, +og svanahljómi, silungsá +og sælu blómi valla, +og bröttum fossi, björtum sjá +og breiðum jökulskalla. +Drjúpi hana blessun drottins á +um daga heimsins alla. + +### SAKNAÐARLJÓÐ + +Þá var ég ungur, +er unnir luku +föðuraugum +fyrir mér saman. +Man ég þó missi +mínn í heimi +fyrstan og sárstan, +er mér faðir hvarf. + +Man ég afl andans +í yfirbragði, +og ástina björtu, +er úr augum skein. +Var hún mér æ, +sem á vorum ali +grös in grænu +guðfögur sól. + +Man ég og minnar +móður tár, +er hún aldrei sá +aftur heim snúa +leiðtoga ljúfan, +ljós á jörðu +sitt og sinna. +Það var sorgin þyngst. + +Mjög hef ég síðan +til moldar ganga +ættmenni bezt +og ástvini séð. +Þá vill hugur +harma telja, +þegar böl búið +er brjósti nýtt. + +Sá ég hinn góða, +er guði treysti, +ungan og öflgan, +ættjarðar von, +Lárus á bana- +bólstur hniginn, +líki líkan, +er ég land kvaddi. + +Sá ég með Dönum +í dauðra reit +Baldvin úr bruna +borinn vera, +fríða, fullstyrka +frelsishetju. +Söknuður sár +sveif mér þá að hjarta. + +Sá ég Torfa, +tryggðreyndan vin, +hraustan, hreinskilinn +og hjartaprúðan, +lífi ljúka +og lagðan vera +ættjörðu fjær, +er hann unni mest. + +Átti eg eftir +enn í heimi +ungan og fagran +ættarblóma. +Vel mundi kæta, +vel mundi bæta, +laufgrænn kvistur +lágan runna. + +Það man ég yndi +öðru meira, +er við Skafta +skilning þreyttum, +eður á vænum +vinafundi +góða, geðspakur, +á gleði jók. + +Sá ég þig, frændi, +fræði stunda +og að sælum +sanni leita, +þegar röðull +á rósir skein, +og bládögg beið +á blámi sofanda. + +Er þú á hæsta +hugðir speki +og hátt og djúpt +huga sendir. +Of eru myrk +manna sonum, +þeim, er hátt hyggja, +in helgu rök. + +Brann þér í brjósti, +bjó þér í anda, +ást á ættjörðu, +ást á sannleika. +Svo varstu búinn +til bardaga +áþján við +og illa lygi. + +Nú ertu lagður +lágt í moldu +og hið brennheita +brjóstið kalt. +Vonarstjarna +vandamanna +hvarf í dauðadjúp, +en drottinn ræður. + +### JÓNAS TÓMASSON + +Horfin er enn, +er unni eg mest, +ættar von +úr alda heimi, - +ennið ásthreina, +augun bláu, +brjóstið barnglaða, +byrgt undir fjöl. + +Gott hugði eg til +af guði senda +ylinn að ala, +ást að festa. - +Ættjörðu skyldi +ungur renna +kvistur af stofni +fyrir krepptan reyr. + +Gott hugði eg til +af guði senda +neistann að glæða +námsölum í. +Ungur skyldi, +þau er hinn eldri nam, +fræðin fegurstu +framar styðja. + +Réði sá, er ræður +rökum alda, +ástríkur faðir, +alls vitandi. +Því skal traustri trú +trega binda, +frænda sviptur +framar þreyta. + +### EFTIR TÓMAS SÆMUNDSSON + +"Dáinn, horfinn!" - Harmafregn! +Hvílíkt orð mig dynur yfir! +En ég veit, að látinn lifir. +Það er huggun harmi gegn. +Hvað væri annars guðleg gjöf, +geimur heims og lífið þjóða? +Hvað væri sigur sonarins góða? +Illur draumur, opin gröf. + +Nei, ég vil ei hæða hinn +lifanda föður allra anda, +ástina þína, verkin handa, +dýrðina þína, drottinn minn! +Fast ég trúi: Frá oss leið +vinur minn til vænna funda +og verka frægra, sæll að skunda +fullkomnunar fram á skeið. + +Djúpt í guðs og mannsins mynd, +alið sem að ungbarn þiggur, +eilífur gneisti falinn liggur, +ef að hann kæfir ekki synd. +Sannlega, veit ég, syndgar hver. +Þó eru nokkrir, Kristí krossi +og kenning studdir, andans hnossi +vaxnir - og Tómas víst það er. + +En þá fósturfoldin hans! +Hví vill drottinn dýrðarríkur +duftinu varpi jafnskjótt slíkur +andi hennar mesta manns? +Hví vill drottinn þola það, +landið svipta svo og reyna, +svipta það einmitt þessum eina, +er svo margra stóð í stað? + +Efa, maður, ei það ráð. +Eitt ég veit um alla vegu +alheims speki dásamlegu: +Þeir eru einskær ást og náð. +Felum drottins föðurhönd +harma vora og hjartaþunga, +hann á sjálfur gamla og unga, +frjáls að leysa líkamsbönd. + +Veit ég og, hans verða spor, +svo þótt Tómas frá oss færi, +fullvel er það sem hann væri +ennþá mitt á meðal vor. +Lengi mun hans hfa rödd, +hrein og djörf, um hæðir, lautir, +húsin öll og víðar brautir, +þá Ísafold er illa stödd. + +Sú er hin mikla blessan bezt +allra þeirra, er meira megna +en munninn fylla og sínu gegna, +að þegar þeir deyja, þá er hún mest. +Hver, sem vinnur landi og lýð, +treysta skal, að öll hans iðja +allt hið góða nái styðja +þess fyrir hönd, er hóf hann stríð. + +Sízt vil ég tala um svefn við þig. +Þreyttum anda er þægt að blunda +og þannig bíða sælli funda, - +það kemur ekki mál við mig. +Flýt þér, vinur, í fegra heim. +Krjúptu að fótum friðarboðans +og fljúgðu á vængjum morgunroðans +meira að starfa guðs um geim. + +### VIÐBÓT + +Bjarni amtmaður Thorarensen kvað, er hann fór á nefndarfund í Reykjavík 1841, skömmu eftir dauða Tómasar prófasts Sæmundssonar: + +Þú, sem fyrir skemmstu +skauzt úr hýði, +er fótum horfir +að fjöllum Eyja, +taktu þér orlof +hjá týri gimla +og auktu afl +alþingis vini. + +Hans undir rætur +hverfðu tungu, +svo megi hann mæla +af megni þínu, +að slóðir áa +hinir yngri virði, +að rísi þjóðarþing +á Þingvelli. + + +Jónas bætti við: + +"Hans undir rætur +hverfðu tungu": +Sýndu þeim sandgröf +sögunnar góðu. +Sýndu þeim ið snauða, +sópaða brjóst, +illum öndum +opið að byggja. + +"Hans undir rætur +hverfðu tungu": +Öllum þeim átta +í eyra seg: +landtjón, lýðtjón, +lokinn sóma, +þegnskyldu rof +og þaðan af verra. + +### BJARNI THORARENSEN + +Skjótt hefur sól brugðið sumri, +því séð hef ég fljúga +fannhvíta svaninn úr sveitum +til sóllanda fegri. +Sofinn er nú söngurinn ljúfi +í svölum fjalldölum, +grátþögull harmafugl hnípir +á húsgafli hverjum. + +Skjótt hefur guð brugðið gleði +góðvina þinna, +ástmögur Íslands hinn trausti +og ættjarðar blóminn! +Áður sat ítur með glöðum +og orðum vel skipti. +Nú reikar harmur í húsum +og hryggð á þjóðbrautum. + +Hlægir mig eitt, það, að áttu +því uglur ei fagna, +ellisár örninn að sæti +og á skyldi horfa +hrafnaþing kolsvart í holti +fyrir haukþing á bergi. +Floginn ertu sæll til sóla, +er sortnar hið neðra. + +Glaðir skulum allir að öllu +til átthaga vorra +horfa, er héðan sá hverfur, +oss hjarta stóð nærri. +Veit ég, er heimtir sér hetju +úr harki veraldar +foringinn tignar, því fagna +fylkingar himna. + +Kættir þú margan að mörgu, +svo minnzt verður lengi, +þýðmennið, þrekmennið glaða +og þjóðskáldið góða. +Gleðji nú guð þig á hæðum +að góðfundum anda. +Friði þig frelsarinn lýða. +Far nú vel, Bjarni! + +### SÉRA ÞORSTEINN HELGASON + +Hvarma skúrir harmurinn sári +harðar æsti, minnst er varði. +Vakna þeir ei, en sitja og sakna, +segjast ei skilja, hvað drottinn vilji. +Þegar í á und ísi bláum +ástarríka hjartað í líki +friðað og kalt er sofið, þeim svíður, +sakna og trega, - en enginn vaknar! + +Veit þá enginn, að eyjan hvíta +átt hefur daga þá, er fagur +frelsisröðull á fjöll og hálsa +fagurleiftrandi geislum steypti? +Veit þá enginn, að oss fyrir löngu +aldir stofnuðu bölið kalda, +frægðinni sviptu, framann heftu, +svo föðurláð vort er orðið að háði? + +Veit þá enginn, að eyjan hvíta +á sér enn vor, ef fólkið þorir +guði að treysta, hlekki hrista, +hlýða réttu, góðs að bíða? +Fagur er dalur og fyllist skógi +og frjálsir menn, þegar aldir renna. +Skáldið hnígur og margir í moldu +með honum búa, - en þessu trúið! + +Veit þá enginn, að eyjan hvíta +átt hefur sonu fremri vonum? +Hugðu þeir mest á fremd og frægðir, +fríðir og ungir hnigu í stríði. +Svo er það enn, og atburð þenna +einn vil ég telja af hinum seinni: +Vinurinn fagri oss veik af sjónum +að vonum, því hann var góður sonur. + +Og góður sonur getur ei séna +göfga móður, með köldu blóði, +viðjum reyrða og meiðslum marða, +marglega þjáða, og fá ei bjargað. +Guð er á himnum heima faðir +og hrelldra barna, hvað sem veldur. +Særði bróðir, siginn í værðir, +hann sá þig glöggt undir ísi bláum. + +### AD MATREM ORBATAM + +Hví grátið þér +þanns í gröf hvílir, +ungan elskuson? +Örðug ganga +var oftar geymd +mörgum mæðudögum. + +Helgur engill +hjarta saklausu +í yðar faðmi felst. +Sá mun trúfastur, +unz tími þrýtur, +lítill verndarvinur. + +Tár þau trúlega, +er tryggð vakti, +söfnuð sjóði í +góðverka yðar +fyrir guð flytur, +sem elskar einlægt brjóst. + +Þær munu skærstar, +er þér skýi borin +líðið til ljóss sala, +fagurt skart +yðar friðarklæðis, +gljáperlur glóa. + +### AÐ BÓN JÓHANNS ÁRNASONAR + +Hér liggja sofin +und svarðarmeni +elskuð æskublóm. +Blíðari blund +að brjósti móður +svaf ei sonar auga. + +Hannes og Pétur, +hnignir moldu að, +bræður á barnsaldri, +hvar þér nú sannið, +- því það sannið þér - +að farsæll er hver saklaus sofinn? + +Vonarstjarna +vandamanna +skundaði að skýbaki: +Má-a maður +í moldarfjötrum +fram yfir líf líta. + +### VIÐ DAUÐA FRÚ GUÐRÚNAR STEPHENSEN + +Bláa vegu +brosfögur sól +gengur glöðu skini. +Sérattu söknuð +og sorga fjöld +þeirra, er á landi lifa? + +Gróa grös +við geisla þína +liðinna leiðum á. +En þú brosir +og burtu snýr. +Kvöldgustar kula. + +Svo frá heimi +til himinsala +frelstar sálir fara. +Sýta syrgjendur +sóllausa daga +angurgusti í. - + +Hver er hinn grátni, +sem að grafar beði +beygðu höfði bíður? +Elskað lík +undir köldum leir +hvílir feti framar. + +Styðst harmþrunginn +höfðingi, +Stephensen, að steini. +Fframliðna frú, +föðurlands prýði, +syrgir svo mælandi: + +"Sáran lét guð mig +söknuð reyna! +Verði hans vísdóms +vilji á mér! +Syrtir í heimi, +sorg býr á jörðu, +ljós á himni, +lifir þar mín von. + +Hvar skal ég léttis +í heimi leita? +Hvar skal ég trega- +tár of fella? - +Bíða vil ég glaður, +unz brotnar fjötur +líkams, og laus +líð ég eftir þér". + +Ó, þú máttur +og mikla von, +er þá öflgu styður! +Hjörtun hefjast, +er hetju sjá +standa eina í stríði. - + +### MAGNÚSARKVIÐA + +Úti sat und hvítum +alda faldi +fjallkonan snjalla +fögur ofan lög. +Sá hún um bláan +boga loga +ljósin öll, er lýsa +leið um næturskeið. + +Sofinn var þá fífill +fagur í haga, +mús undir mosa, +már á báru. +Blæju yfir bæ +búanda lúins +dimmra drauma +dró nótt úr sjó. + +Hver er sá, er snörum +hugar augum +skoðar lífs leiðir, +lýð allan og tíð, +vakir og vakir, +vinnu sinnir +hrímkalda grímu +sem hagbjartan dag? + +Fár gat svo fyrri +Frónbyggja sjón +glætt, að þeir mættu +geima skoða heima. +Fár gat svo fyrri +fornra norna +haftböndum sviptan +huga sent á flug. + +Fár gat svo fyrri +fullhugaður bugað +illa villu, +aldaspella gjald. +Legið hefur lygi +og láðbyggja ráð +alla vega spjallað +eitri blend í sveitum. + +Fár gat svo fyrri +fjandann anda +lestan og lostið +lygi brott úr vígi. +Hrakti sá, er vakti +meðan hölda fjöld +megindofin sefur, +marghöfðaðan varg. + +Úti sat und hvítum +alda faldi +fjallkonan snjalla +fögur ofan lög. +Sá hún þar, er vá +að vættum hættum +íturdjarfur arfi +Ólafs und sólu. + +Róma varð á þröm: +ruddist að studdri +fólkumdjarfur fylking +flokks óþokkans. +Hugði sá, er dugði, +fyrir hamar fram +alla saman fella +ókind á sjó. + +Hvergi hugðist varga +við snúið lið +berast láta fyrir +bjarga rið niður. +Hremmdu þá og klemmdu, +er hrekjast tóku, +stoðir, sem að stóðu +á styrku landvirki. + +Hvöt var aðsókn hetju, +harðnar enn senna, +ógurlegum augum +á skaut hann þá. +Stóðu þeir við stoðir, +stökk ei né hrökk, +stærri jafnt og smærri +strjúka vill ei púki. + +Magnús gekk af megni +und merki, þjóðsterkur +láðvörður lýða, +ljóss, sér til hróss. +Skoðar hann í hraða +högum augum +tjón allt og lán +tigulegs sigurs. + +Ríður hinn ráðgóði +á regin lygnmegins, +höggur nú og leggur, +hrekur allt og rekur. +Forkunnar forvirki +falla um grund alla. +Flýja flokkar lygi. +Fjandi stökk úr landi. + +Skilið á, að skuli +skildi vel halda +maður fyrir móðum +mæringi, nær +aftur sækir eftir +aldyggum hal +flokkur flár nokkur +freka, sem var rekinn. + +Skilið á, að skuli +skilja rétt vilja +frónbúar nú, +að hann fremdarheit efndi. +Dýrum blóðdreyra, +dörsæfðu fjöri, +oft hafa keyptan +ýtar sigur nýtan. + +Úti sat und hvítum +alda faldi +fjallkonan snjalla +fögur ofan lög. +Sá hún þar er lágu +á landi og sandi +fallin með öllu +forvirkin hin styrku. + +Hrjáð yfir láð +þá her æstur fer +og bárur brimóra +bandið auka landa, +hver er sá, er þori +heimsóknar þeim +synja, jafnt og dynja +sóttir yfir dróttir? + +Þörf er brýn á djörfum +þegnum, er gegn +fara þori fara +flæmings afskræmi. +Þörf er og á djörfum +þegnum, er megni +sterkleg vinna stórvirki, +strita samt með viti. + +Veit ég eitt, að vitur +vildi hann, skyldi +öll fá margbætt spjöllin +ástland hans, en brást. +Sá hann þar er lágu +á landi og sandi +fallin með öllu +forvirkin hin styrku. + +Lýður landráður! +Láttu sjá, - vel máttu +bæta vígi, brotin +braml það við og svaml. +Lýður landráður, +léttu nú svefnhettu! +Enn er nóg að vinna, +einum er starf meinað. + +Úti sat und hvítum +alda faldi +fjallkonan snjalla, +fögur ofan lög. +Sá hún þar á, +er eybúa grúi +mesta manns að flestu +moldu vígði hold. + +### Á GÖMLU LEIÐI (1841) + +Fundanna skært í ljós burt leið, +blundar hér vært á beði moldar, +blessaðar fært á náðir foldar, +barnið þitt sært. Ó, beiska neyð! + +* + +Sofið er ástaraugað þitt, +sem aldrei brást að mætti mínu. +Mest hef ég dáðst að brosi þínu. +Andi þinn sást þar allt með sitt. + +Stirðnuð er haga höndin þín, +gjörð til að laga allt úr öllu, +eins létt og draga hvítt á völlu +smámeyjar fagurspunnið lín. + +Vel sé þér, Jón, á værum beð, +vinar af sjónum löngu liðinn, +lúður á bón um himnafriðinn. +Kalt var á Fróni, Kjærnested! + +* + +Slokknaði fagurt lista ljós. +Snjókólgudaga hríðir harðar +til heljar draga blómann jarðar. +Fyrst deyr í haga rauðust rós. + +### SÉRA STEFÁN PÁLSSON + +"Móðir og faðir +mjúk og ástríkur +yfirgáfu þig +á æskuskeiði". +En guð þín geymdi +og gæðafjöld, +lán og lífsfögnuð +ljúflega veitti. + +Treystir þú og fólst þig +hans tryggri hendi, +ungur þjónn +hans orða heilagra. +Nú ertu leiddur +lífsbraut hreina +alla að morgni +eilífðardags. + +Hvað er skammlífi? +Skortur lífsnautnar, +svartrar svefnhettu +síruglað mók. +Oft dó áttræður +og aldrei hafði +tvítugs manns +fyrir tær stigið. + +Hvað er langlífi? +Lífsnautnin frjóva, +alefling andans +og athöfn þörf. +Margoft tvítugur +meir hefur lifað +svefnugum segg, +er sjötugur hjarði. + +Vel sé þér, vinur, +þótt vikirðu skjótt +Frónbúum frá +í fegri heima. +Ljós var leið þín +og lífsfögnuður, +æðra, eilífan +þú öðlast nú. + +Oft kvaðstu áður +óskarómi +heimfýsnarljóðin +hugum þekku. +Vertu nú sjálfur +á sælli stund +farinn í friði +til föðurhúsa. + +### VIÐ JARÐARFÖR JÓNS SIGHVATSSONAR + +Dýrðlegt er að sjá, +eftir dag liðinn, +haustsól brosandi +í hafið renna. +Hnígur hún hóglega +og hauður kveður +friðarkossi +og á fjöllum sezt. + +Stíga þá stjörnur, +stórmargur her, +alskærar upp +af austurstraumum, +blysum blikandi +um boga heiðan +salar sólheima +á svalri nóttu. + +Vaka þær og vaka +og veralda fjöld +sáu og sjá munu, +systur álfröðuls. +Sofnar ei og sofnar ei, +þótt sígi til viðar, +sælust dagstjarna, - +sést hún enn að morgni. + +Svo er um ævi +öldungmanna +sem um sumar- +sól fram runna. +Hníga þeir á haustkvöldi +hérvistardags +hóglega og blíðlega +fyrir hafsbrún dauða. + +Vaka þá og skína +á vonarhimni +alskærar stjörnur, +anda leiðtogar: +Traust og trú +og tryggrar speki +augað ólygna +og andarnir lifa! + +Gráti því hér enginn +göfugan föður, +harmi því hér enginn +höfðingja liðinn. +Fagur var hans lífsdagur, +en fegri er upp runninn +dýrðardagur hans +hjá drottni lifanda. + +Það var Jón Sighvatsson, +sofnaði prúðmenni. +Gekk hann til grafar +í góðri elli. +Geymd verður minning +göfugs stórbónda +í blessun hjá börnum +búanda lands. + +Menjar skulu merkis- +mannsins frábæra +lifa og blómgast +í landi voru. +Dáðar og dugnaðar, +dyggðar hvers konar, +frægðar og frama +fyrirmynd hann var. + +Stríð er starf vort +í stundarheimi, +berjumst því og búumst +við betri dögum. +Sefur ei og sefur ei +í sortanum grafar +sálin, - í sælu +sést hún enn að morgni. + +### GUÐMUNDUR KAUPMAÐUR GUÐMUNDSSON + +Undir nafni Péturs Guðmundssonar, bróður hans + +"Leiður er mér sjávar sorti +og sólgáruð bára", +síðan barma brutu +blíðan mér frá síðu. +Algildum hafa öldur +ótrúar gröf búið, +grimmar djúpt í dimmum +dauðasal hann falið. + +"Eigi mega á ægi +ógrátandi líta" +móðir, systur, síðan +sjá ei bróður góðan. +Löngum sjá þær lengi +lauguðum sjónbaugum +öldur á og leita +að þeim, er nam staðar. + +Einatt úti sýnist +undir land á stundum +seglum skautuð sigla +sæhind þægum vindi. +Það er ei hann, sem fanna +hallar leið að fjalli. +Þoka er það, sem rýkur, +þýð, á mari víðum. + +"Sól gengur síð undir Múla, +svo langar þig þangað", +ein sem ástin bezta +ól á föðurbóli. +Hver veit, hve langt leita +leiðar þarf nú arfi +hrelldrar móður, að kveldi +hennar í faðm renna? + +Varð ekki í grænum garði +grafar auðið þeims dauða +greip á dökku djúpi +drómi, lífs úr blóma. +Blæju bláa ægir +breiddi yfir þig leiddan, +frændi, fyrr sem undir +fold og seimi heima. + +Seggir af harmi hyggja +helzt eiga sem mega, +stutta stund að létta +starfa sinna, en minnast +eg með ástartrega +ætíð hlýt - því bætist +aldrei það er ég þolda - +þín, minn bróðir góður. + +### TIL GÍSLA THORARENSENS + +við lát móður hans + +Þá saztu úti undir húsagarði, +en eftir litla stund hún kom í móti +þér, sem að áður varst með sorg í sinni, +og sagði: "Réttu koss að móður þinni". + +Og nú er aftur hryggð í huga þér, +en hversu þyngri léttum drengjatárum! +Nú skilst þér, vinur, "einmana" hvað er, +þar einn þú hrekst í dimmum harmabárum. +Nú veiztu, hvernig hjartað brjóstið ber, +er blóðið logar þar í djúpum sárum, +og aldrei kemur oftar þig að hugga +þín elsku móðir, falin dauðans skugga. + +Það svíður, - aldrei oftar líta fær +þú augna ljósið fyrsta ag skærsta þinna. +Ó, hvað er vorið, meðan moldin grær +á móður leiði? - Til hvers er að vinna? +Það svíður: Aldrei oftar, vinur kær, +þú athvarf skalt í móður skjóli finna. +- Harmaðu þreyttan þig á nótt og degi +í þögn og kyrrð, svo hryggðin sigra megi. + +### EFTIR MAREN HAVSTEEN + +Sem þá á vori sunna hlý +sólgeislum lauka nærir +og fífilkolli innan í +óvöknuð blöðin hrærir, +svo vermir fögur minning manns +margt eitt smáblóm um sveitir lands, +frjóvgar og blessun færir. + +### MÓÐURMISSIR + +fyrir J. P. Havsteen + +Leiði minnar móður, +- mold grær holdi kæru, +andi sæll með öndum +unir - sæt tár væta. +Blessi jörð, en verðum +vinnu dýrri sinna, +hæstur guð, sem mesta +hylur von góðs sonar. + +### FERÐALOK + +Ástarstjörnu +yfir Hraundranga +skýla næturský. +Hló hún á himni, +hryggur þráir +sveinn í djúpum dali. + +Veit ég, hvar von öll +og veröld mín +glædd er guðs loga. +Hlekki brýt ég hugar +og heilum mér +fleygi faðm þinn í. + +Sökkvi eg mér og sé ég +í sálu þér +og lífi þínu lifi. +Andartak sérhvert, +sem ann þér guð, +finn ég í heitu hjarta. + +Tíndum við á fjalli, +tvö vorum saman, +blóm í hárri hlíð. +Knýtti ég kerfi +og í kjöltu þér +lagði ljúfar gjafir. + +Hlóðstu mér að höfði +hringum ilmandi +bjartra blágrasa, +einn af öðrum, +og að öllu dáðist, +og greipst þá aftur af. + +Hlógum við á heiði, +himinn glaðnaði +fagur á fjalla brún. +Alls yndi +þótti mér ekki vera +utan voru lífi lifa. + +Grétu þá í lautu +góðir blómálfar, +skilnað okkarn skildu. +Dögg það við hugðum, +og dropa kalda +kysstum úr krossgrasi. + +Hélt eg þér á hesti +í hörðum straumi, +og fann til fullnustu, +blómknapp þann gæti +eg borið og varið +öll yfir æviskeið. + +Greiddi eg þér lokka +við Galtará +vel og vandlega. +Brosa blómvarir, +blika sjónstjörnur, +roðnar heitur hlýr. + +Fjær er nú fagurri +fylgd þinni +sveinn í djúpum dali. +Ástarstjarna +yfir Hraundranga +skín á bak við ský. + +Háa skilur hnetti +himingeimur, +blað skilur bakka og egg. +En anda, sem unnast, +fær aldregi +eilífð að skilið. + +### LA BELLE + +Mín er meyjan væna +mittisgrönn og fótnett, +bjarteyg, brjóstafögur, +beinvaxin, sviphrein. + +Hvít er hönd á snótu, +himinbros á kinnum, +falla lausir um ljósan +lokkar háls inn frjálsa. + +### SÖKNUÐUR + +Man ég þig, mey, +er hin mæra sól +hátt í heiði blikar. +Man ég þig, er máni +að mararskauti +sígur silfurblár. + +Heyri ég himinblæ +heiti þitt +anda ástarrómi. +Fjallbuna þylur +hið fagra nafn +glöð í grænum rinda. + +Lít ég það margt, +er þér líkjast vill +guðs í góðum heimi: +brosi dagroða, +blástjörnur augum, +liljur ljósri hendi. + +Hví hafa örlög +okkar beggja +skeiði þannig skipt? +Hví var mér ei leyft +lífi mínu +öllu með þér una? + +Löngum mun ég, +fyrr hin ljósa mynd +mér úr minni líði, +á þá götu, +er þú ganga hlýtur, +sorgaraugum sjá. + +Sólbjartar meyjar, +er ég síðan leit, +allar á þig minna. +Því geng ég einn +og óstuddur +að þeim dimmu dyrum. + +Styð ég mig að steini, +stirðnar tunga, +blaktir önd í brjósti. +Hnigið er heimsljós, +himinstjörnur tindra. - +Eina þreyi ég þig. + +### ÁSTA + +Ástkæra, ylhýra málið, +og allri rödd fegra, +blíð sem að barni kvað móðir +á brjósti svanhvítu, +móðurmálið mitt góða, +hið mjúka og ríka, +orð áttu enn eins og forðum +mér yndið að veita. + +Veiztu það, Ásta, að ástar +þig elur nú sólin? +Veiztu, að heimsaugað hreina +og helgasta stjarnan +skín þér í andlit og innar +albjört í hjarta, +vekur þér orð, sem þér verða +vel kunn á munni? + +Veiztu, að lífið mitt, ljúfa, +þér liggur á vörum? +Fastbundin eru þar ástar +orðin blessuðu. +Losa þú, smámey, úr lási +lítinn bandingja! +Sannlega sá leysir hina +og sælu mér færir. + +### ÉG BIÐ AÐ HEILSA + +Nú andar suðrið sæla vindum þýðum. +Á sjónum allar bárur smáar rísa +og flykkjast heim að fögru landi ísa, +að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum. + +Ó, heilsið öllum heima rómi blíðum +um hæð og sund í drottins ást og friði. +Kyssið þið, bárur, bát á fiskimiði. +Blásið þið, vindar, hlýtt á kinnum fríðum. + +Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr, sem fer +með fjaðrabliki háa vegaleysu +í sumardal að kveða kvæðin þín! +Heilsaðu einkum, ef að fyrir ber +engil með húfu og rauðan skúf, í peysu. +Þröstur minn góður, það er stúlkan mín. + +### STÖKUR + +Enginn grætur Íslending +einan sér og dáinn. +Þegar allt er komið í kring, +kyssir torfa náinn. + +Mér er þetta mátulegt, +mátti vel til haga, +hefði ég betur hana þekkt, +sem harma ég alla daga. + +Lifðu sæl við glaum og glys, +gangi þér allt í haginn. +í öngum mínum erlendis +yrki ég skemmsta daginn. + +Sólin heim úr suðri snýr, +sumri lofar hlýju. +Ó, að ég væri orðinn nýr +og ynni þér að nýju! + +### VÍSUR ÍSLENDINGA + +Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur, +er gleðin skín á vonarhýrri brá? +Eins og á vori laufi skrýðist lundur, +lifnar og glæðist hugarkætin þá. +Og meðan þrúgna gullnu tárin glóa +og guðaveigar lífga sálaryl, +þá er það víst, að beztu blómin gróa +í brjóstum, sem að geta fundið til. + +Látum því, vinir, vínið andann hressa, +og vonarstundu köllum þennan dag, +og gesti vora biðjum guð að blessa +og bezt að snúa öllum þeirra hag. +Látum ei sorg né söknuð vínið blanda, +þó senn í vinahópinn komi skörð, +en óskum heilla og heiðurs hverjum landa, +sem heilsar aftur vorri fósturjörð. + +Já, heill og heiður, Halldór okkar góður! +Þú hjartans beztu óskum kvaddur sért, +því þú ert vinur vorrar gömlu móður +og vilt ei sjá, að henni neitt sé gert. +Gakktu með karlmannshug að ströngu starfi, +studdur við dug og lagasverðið bjart, +og miðla þrátt af þinnar móður arfi +þeim, sem að glata sínum bróðurpart. + +Og heill ag heiður, hinir landar góðu, +sem hólmann gamla farið nú að sjá, +þar sem að vorar vöggur áður stóðu +og vinarorðið fyrst á tungu lá. +Hamingjan veiti voru fósturláði, +svo verði mörgum deyfðarvana breytt, +allan þann styrk af ykkar beggja ráði, +sem alúð, fjör og kraftar geta veitt. + +Það er svo tæpt að trúa heimsins glaumi, +því táradöggvar falla stundum skjótt, +og vinir berast burt á tímans straumi, +og blómin fölna á einni hélunótt. - +Því er oss bezt að forðast raup og reiði +og rjúfa hvergi tryggð né vinarkoss, +en ef við sjáum sólskinsblett í heiði +að setjast allir þar og gleðja oss. + +Látum því, vinir, vínið andann hressa +og vonarstundu köllum þennan dag, +og gesti vora biðjum guð að blessa +og bezt að snúa öllum þeirra hag. +Því meðan þrúgna gullnu tárin glóa +og guðaveigar lífga sálaryl, +þá er það víst, að beztu blómin gróa +í brjóstum, sem að geta fundið til. + +### KVEÐJA ÍSLENDINGA TIL SÉRA ÞORGEIRS GUÐMUNDSSONAR + (26. apríl 1839) + +Nú er vetur úr bæ, +rann í sefgrænan sæ +og þar sefur í djúpinu væra. +En sumarið blítt +kemur fagurt og frítt +meður fjörgjafarljósinu skæra. + +Brunar kjóll yfir sund, +flýgur fákur um grund, +kemur fugl heim úr suðrinu heita. +Nú er vetur úr bæ, +rann í sefgrænan sæ, +nú er sumrinu fögnuð að veita. + +Verum röskir í dag, +kveðum víkingalag, +svo menn viti vér ætlum að berjast. +Herjum flöskurnar á, +og það fari sem má, +og þeir falli, sem ná ei að verjast. + +Verum glaðir í dag, +er í vinar vors hag +hefur veröldin maklega gengið. +Senn er Glólundur grænn, +senn er Grashagi vænn, +Þar mun gaman að reika yfir engið. + +Þó vér skiljum um stund, +þá mun fagnaðarfund +okkur fljótt bera aftur að höndum, +því að hjólið fer ótt, +því að fleyið er fljótt, +er oss flytur að Glólundar ströndum. + +Þegar lauf skrýðir björk, +þegar ljósgul um mörk +rennur lifandi kornstanga móða, +þá mun farið af stað, +þá mun þeyst heim í hlað +til hans Þorgeirs í lundinum góða. + +Þá mun sjón verða að sjá, +hvernig hirðinum hjá +þar í haganum sauða þrífst fjöldinn. +Þá mun riðið í lund +til að stytta sér stund, +þá mun staupunum glamrað á kvöldin. + +Farðu glaður af stað, +leiði gæfan í hlað +þig á Glólundar hagsæla inni. +Vertu, Þorgeir vor, sæll! +Vertu, vinur vor, sæll! +Þetta veri vort skilnaðarminni. + +Hafðu þökk fyrir allt, +er þú varst oss ávallt! +Nú mun vandhæfi slíkan að finna. +Veiti hamingjan þér +það, sem hugsum nú vér, +góði hugljúfinn bræðranna þinna! + +### TIL KEYSERS + +Þó landa hringur bylgjum blám +ey vora í faðmi feli víðum, +en fjarri þú hjá vinum blíðum +á móðurjarðar kætist knjám, +mundu þá samt, að eitt það er +ígildi snoturt fegri rósa, +Gleymdu-mér-ei, sem grær eins hér +á grundu kaldri norðurljósa. + +### OCCIDENTE SOLE + Ad amicum + +Ille dies utramque ducet ruinam. + Horats. + +Við skulum sól +sömu báðir +hinzta sinni +við haf líta. +Létt mun þá leið +þeim, er ljósi móti +vini studdur +af veröld flýr. + +### RITAÐ Í MINNINGABÓK N. K. + +Sérattu Snæfells +snjóvga tind, +sólu roðinn, +sveiptan þoku, +stjörnu skininn, +á strönd bíða, +björgum studdan standa? + +Fyrr man hinn ljósi +af landtöngum +fjallafoldar +fósturjarðar +vörður víkja +en ég, vinur, þér +hjartafólgnum +úr hug sleppi. + +### TIL FINNS MAGNÚSSONAR + +Gleðji þig guðsstjörnur, +sem gladdi bezt +mig, og mörgu sinni, +vegstjarnan fagra +vizku þinnar, +ástjarðar ljúfasta ljós! + +### KVEÐJA ÍSLENDINGA TIL ALBERTS THORVALDSENS + +Í höfum norður +við himin gnæfir +eyja ísi skyggnd +og eldi þrungin. +Þar rís hin fagra +feðra þinna +móðurmold +úr marar skauti. + +Fjöld sá hún frægra +fólkbetrunga. +Var-a þeim vizku +vant né snilli. +Þó hefur engi +annar sem þú +frægðargeisli +yfir fold þá skinið. + +Sæl þættist hún, +ef hún sjá mætti +yndi fegurst +augna sinna. +Sæl þættist hún, +ef hún sjálf mætti +frægð þá fullþakka; +er hún fékk af þér. + +Hver hefur dýrra +af drottni þegið +annar og unnið +erindi þér? +Veitti þér fulla +fegurð að skoða +himna höfundur, +heimi veittir þú. + +Ein situr úti +yfir öldugeimi +fósturfold +feðra þinna. +Hefur né eina +augum litið +lífmynd ljúfa, +er þú leiddir fram. + +Vittu samt, að þar +á vörum lifir +broshýrra barna +og blíðra meyja +heitið heimfræga, +er heyrir hver +móður margnefna +mögur í landi. + +Ó, að þú mættir +augum leiða +landið loftháa +og ljósbeltaða, +þar sem um grænar +grundir líða +elfur ísbláar +að ægi fram. + +Þar er Heklufjall +og Hofsjökull, +Balljökull, Bláfell +og Baulutindur, +Hólmur, Hegranes +og Hlíðin góða, +þar sem enn byggja +ættmenn þínir. + +Myndi þá hinn mikli +mögur Þorvaldar +kynland sitt kenna +og karlmannlegt þykja. +Tign býr á tindum, +en traust í björgum, +fegurð í fjalldölum, +en í fossum afl. + +Myndu þá sveinar +og meyjar bláeygar +Snælands hins snjókrýnda +snúast þér í móti, +frænda færandi +frægstum í heimi +barnslegar ástir, +sem beztar kynnu. + +Og feður harðhendir +hraustra drengja +og mæður málblíðar +mundhvítra snóta +blessa þann, er bjó +börnum þeirra +fyrirmynd fegursta +frægðar að leita. + +Og þó und sólu +suðurheima +eyðir þú ævi +að alföðurs vild, +ann þér um aldur +Ísafoldar +sonur og dóttir, +meðan sær dunar. + +### ÞÖKK ÍSLENDINGA TIL ALBERTS THORVALDSENS + +"Ein situr úti +yfir öldugeimi +fósturfold +feðra þinna. +Hefur né eina +augum litið +lífmynd ljúfa, +er þú leiddir fram". + +Svo kvað á hausti +hrímgrundar sjöt, +kynlanda kærstum, +þá er kveðju flutti, +vitandi víst +um vingjöf þína, +dulin, hvað dveldi +dýrgrip á leið. + +Nú hefur bætta +sá, er bezt um kunni, +eftirþrá +augna vorra. +Samir því að sæma +þann, er senda lét +vonar fylling, +vorþökkum með. + +Ungir og aldnir +andvirki frá +gangið að skoða +í guðs musteri! +Skín þar hin helga +á höggnum steini +- ljóstær lífsbrunnur - +laug sáttmála. + +Hver hefur leiddar +fyrir líkams augu +myndir guðlegar +musterið í? +Hefji höfuð sín +hingað farinn +lýður og líti +lotningu með! + +Sjáið hér fegursta +friðarmynd, - +blíða Maríu +með barnið á skauti. +Hallast að góðrar +guðsmóður knjám +ungur Jóhannes +og ástarblíður. + +Sjáið ánni í +ailra manna +lausnara ljúfan +og líknarskæran +skírn að skírast, +áður skepnu sína +guði vinni, +þá er glötuð var. + +Sjáið ennfremur +ástvin beztan +barnanna ungu, +er hann blessar þau. +"Leyfið þeim", segir +hinn líknarfulli, +"öllum hjá mér +athvarfs að leita". + +Hver sá í huga +svo heilög tíðindi? +Hver lét þau stíga +af steininum fram? +Hver hefur leiddar +fyrir líkams augu +myndir guðlegar +musterið í? + +Hefji höfuð sín +hingað farinn +lýður og lesi +letur á steini. +Englar alskærir +og ástum bundnir +líða þar yfir, - +en letrið greinir: + +"Reist smíð þessa +í Róm suður +Albert Thorvaldsen +fyrir árum tólf, +ættjörðu sinni, +Ísalandi, +gefandi hana +af góðum hug". + +Albert Thorvaldsen +ættjörðu gaf. +Hve skal ættjörð hans +Alberti þakka? +Breiðar eru bárur +að borgum fram, +frændinn fjarlægur +feðra láði. + +* + +Þá væri launað, +ef þú líta mættir +ásján upp lyfta +ungrar móður, +þar sem grátglaður +guði færir +barn sitt bóndi +að brunni sáttmála. + +### KVEÐJA TIL UPPSALA - FUNDARINS 1843 + +"Bræður munu berjast +og að bönum verða", +ógnar hin aldna spá. +Fram komu fyrr, +og að fullu sé! +öll þau orð völu. + +Fundizt hafa bræður +við Fýrisá, +faðmast fóstbræður. +Tryggðum treystust, +trausti bundust +synir samþjóða. + +Ást mætir ást +og afli safnar +meir en menn viti. +Margur dropi +verður móða fögur +og brunar að flæði fram. + +* + +Eldur er í norðri, +ey hefur reista +móðir yfir mar, +beltað bláfjöllum, +blómgað grasdölum, +faldað hvítri fönn. + +Búa þar og rækja +bræður yðrir +forna frændsemi, +muna, þótt margt +hafi milli borið, +ættstofn allra vor. + +Kveð ég yður, unga +austmenn samhuga, +vel fyrir vora hönd. +Kveð ég yður kossi +kærra vona +og handar heitbandi. + +Kref ég yður arfs +og ættartrausts, +bróðurbands og tryggða +sem fremst þér vitið, +að föðurleifðar +vorrar vel gættum. + +* + +Blaðist æ og blómgist +til blessunar +viður vináttu, +sem góður andi +gróðursetti +yðar á Óðinshæð. + +Hreysti, ráðsnilli +og hugprýði +vina styðji von. +Sigri sannindi +ag samheldi. +Ást guðs öllum hlífi! + +### LEIÐARLJÓÐ TIL HERRA JÓNS SIGURÐSSONAR ALÞINGISMANNS + +Byr um gráð þig beri +bugþægur, flugnægur. +Frói þér á flóa +fundur Ísagrundar. +Sjáðu land, er leiðir +ljós um bláa ósa +glöðust sól, og glæðir +Glámutind í vindum. + +Tygja þá, og teygja +tá láttu jó gráan, +hvítur hæfir snotrum +hestur framagesti. +Móður fyrst og föður +finndu, - svo í skyndi +reið um háar heiðar +hertu slyngur að þingi. + +Hyggjum víst, að vestan +ver ókunnan beri, +járnum jörðu spornar +jór að klifi stóru. +Þá er sem að sjáum: +sveif bifan þig yfir +hvarmahreggs, á barmi +háum Almannagjáar. + +Breiðir kvöldið blíða +bláan yfir sjáinn +ljósa blæju, hýsa +hængir í marsængu. +Hátt um hraunið kletta +hylja runnar, dylja +kjarngrös kaldar firnir, +knýr ramur foss hamar. + +Búðafjöldinn báða +bakka fríða skrýðir +Öxarár. En vaxa +eina þar um steina +möðrur mjög, og öðrum +mjúk túnblæja hjúkrar, +hunangsfluga holu +hyggin marga byggir. + +Autt er enn að mönnum +Alþingi, - talslyngra +hölda, hvað mun valda? +Hafa reiðir tafizt? +Nei, ef satt skal segja, +sunnanfjalls þeir spjalla. +Þingið fluttu þangað +þeir á kalda eyri. + +Hlýjan bústað býja +biðjum þér að liði +verða. Þiggðu værðir +værar á grund kærri. +Elt svo hina! Haltu +hugprúður til búða +Víkur. - Við þig leiki +völin á mölinni. + +### VIÐ BURTFÖR STIFTAMTMANNS HOPPE FRÁ ÍSLANDI Í ÁGÚST 1829 + +Undir skólans nafni + +Þökk sé þér, vinur, +velgjörari, +skjöldur skóla vors. +Oss var ásjá þín +oftar reynd +en að hún oss gleymzt geti. + +Glaðir vórum, +og þú gladdist með, - +vórum sjúkir hið sama. +Þá kom hönd þín +hjálp að rétta, +fremst sem góður gat. + +Höfum-at annað +til endurgjalds +þér en þakkir sýna, +og að brúka, +bezt sem vitum, +allt, er veittir vel. + +En landsins faðir, +sem lagði þér +verðug völd í skaut, +metur mannkosti +að maklegleikum, - +heiðri og hylli launar. + +Spyrnir ey +við ísafjötrum, +sér á suðurvegu: +Hví ertu, Fjeldsted; +foldar ljós, +senn af sjónum liðinn? + +Má-a landi +löngum tölum +söknuð sárri vekja. +Brosa vinir, +þó und brjósti sé +hjarta harmi spennt. + +Nú hefur Esja +aldið höfuð +skýjatrefli skautað. +Byltast bólstrar, +því á bröttum tind +beina byrir flug. + +Ríður Rán +á reyðar baki, +dökkar dætur rísa. +Sú skal sveit +yfir svalan mar +leiða landsins vin. + +Flokk sé ég annan +til fylgdar þér, +sé ég skærri skara: +Það eru góðverk +gjörð í landi, +þakkir þeirra, er nutu. + +Svo hefur gömul +úr garði búa +móðir viljað mög. +Heill far þú, Hoppe! +Hjá oss skal +nafn þitt niðjum gefið. + +Líttu mót vestri +yfir ljósum tind +Snæfells stjörnu blika! +Það er arðstír þinn, +hvers aðalskin +bíður betri daga. + +Hann oss lýsir, +meðan land byggist. +En ef það í sjó um sígur, +himinvængjað +man ið helga ljós +til hærri heima fljúga. + +### HVÍ SKYLDI ÉG EI VAKNA VIÐ? + +Hví skyldi ég ei vakna við +og verki tömu sinna? +Veit ég, að stuttri stundarbið +stefin mín engir finna. +En fyrst þú gazt svo góðs til mín, +get ég þá sleppt að minnast þín, +ættprýði mín og minna? + +Man ég þá nefndi máttarbaðm +mætan, er geði ljúfu, +þegar hún hvarf í föðurfaðm, +flugmóða varði dúfu. +Hann hefur blessað barnið sitt. +Blómin þín skrýða landið mitt, +þegar ég bý í þúfu. + +### TIL MÓÐUR MINNAR + +Ég veit það eitt, að enginn átti +aðra eins móður. Feðra gróða +safnaði guð, af ástar efni +aldin spratt, og feðra valdi. +Svo er orðin í Eyjafirði +ættin mín, að frændur þína +lengi mun, meðan lífið yngist, +landið kjósa sér að hrósi. + +Ég þakka þér allt, og enn þótt ekki +alaugun sjái leiðir háar +sonanna beztu, sem að treysta +sannlega verði að þjóðarranni, +veit ég og skil ég samt, í sveitum +svo muni vakna öld, að rakni +hnúturinn versti og börnin beztu +blessi landið, firrist grandi. + +### AD AMICUM + +Ár var alda, +þá er endurborin +fold in fjallsetta +í fyrsta sinn +veltast tók völ +um vegu ókunna +að orði alvalds, +sem allt um skóp. + +Sveipuð saman +hin svása nótt +í ægi faldist, +þá er álfröðull +hóglega hófst +of heiðarbrún, +hlógu hlíðar +við himinljósi. + +Þá var gaman, +er um grænan dal +féllu fagrar ár +fiskum kvikar, +en íturfagur +í eyrarbót +söng svanaflokkur +sætum rómi. + +Unað óþekktum +og undran fylltur +maður inn fyrsti +und meiði hám +einn saman stóð, +augum leiddi +nýja náttúru +og nöfnum hét. + +Aldin, akur +íturbleikur, +fögur eik, +fugl kvakandi, +fallandi foss +og fjallbuna, +hestur, naut +og heiðardýr +hlutu hvert um sig +heiti þaðan. + +Einn saman maður, +engum þekktur, +unaðs óskipts, +er yfir bjó, +nauðgur um naut +og naut aðeins +helftar einnar +þess, er allan hafði. + +Fyrir því fór +fjalli gnæfanda +hug sinn telja, +en háðskur mót. +ómur orðvani +eyra hrærði. +Það var bergmál +frá blám tindi. + +Þá sá alfaðir, +sem öllu stýrir, +grát í auga +hins einmana, +og af forsælu +fram kallaði +brosfagra brúði. +Þá varð brjósti létt. + +Eyddust aldir, +ár um hvurfu. +Fjölguðu þá +og færðust út +mennskir megir +und miðgarði. +Frændur fjarlægir +að fullu gleymdust. + +Þá sá alfaðir, +að ónóg var +brúðar ást +eða blóðskylda +þungar raunir +þjáðra manna +allar að létta +und oki lífs. + +Elskan eilífa, +allt sjáandi, +miskunnar hrærðist +yfir mannsins neyð. +Sá var einn, +að hún ofan sendi, +helgur engill. +Það var hulið ráð. + +Vindur þagði, +vötn stöðvuðu +beljandi straum. +Frá blásölum himins +ský skinfagurt +skærum loga +leið yfir loft +und ljósri mynd. + +Það var vinátta, +sem á vængjum friðar +hné frá himni +í helgum blæ. +Fagnaði fold. +Fylltust gleði +efri loft +og undirdjúp. +Sá var fyrstur nefndur +sumardagur. + +Hreinlynd hjörtu +og hugarprúð +ást einlægri +æðri kynja +ylnuðu þá, +er um aldir síðan +vóx, við hélzt. +Þaðan er vinur um kominn. + +* + +Heim sé ég hverfa +á himinásum. +Rennur sumar- +sól hin fyrsta, +umgenginna +sem alda mér, +minning vekur +og margs, sem áður +brá minni blíðu +barns gleði. + +Ungur var ég forðum, - +fór ég einn saman +föður sviptur, +er mér fremst unni. +Þannig liðu +langir dagar, +meini blandnir +á marga lund. + +Fluttu mig forlög +um fjöll suður +einn, ókunnan, +alls þurfanda. +Máttat eg móður +mál um nema, +máttat eg systur +mína sjá, +þá var mér bróðir +blíður horfinn. + +* + +Þá varst það þú, +er ég þegjandi +aðgætnu auga +einatt leiddi. +Það sagði mér hugur, +að þar myndi +viður vaxa, +er eg vænti af skjóls. + +Sátum við tveir +við sjó löngum +og sáttir á +sundi lékum. +Þótti mér þá +sem við þreyta myndum +burt veltandi yfir +bylgjur lífs +einum hug +mót örlaga straumi. + +Þá varst það þú, +er ég þegjandi +valdi mér +að vini fyrstum. +Síðan ég hef +sælla stunda +allmargra notið +ama horfinn, +bezti Gísli, +að brjósti þér. - + +Þess ég nú minnumst, +er þetta er +sigurdagur þess, +er sendi himinn +engil ofan +upp að ræta +harma gras +úr hyggju reit +andvarpandi +aumra manna. + +Hvað mér þá fyrr +í hug koma +skyldara myndi +eður skapi nær +óskar orð +en að árna góðs +þeims mér að vini +veittan hefur? + +Má ég alda +ókominna +orð um nema, +en þau að eyrum mér +berast brotin, +sem brimhviður +ómi álengdar +við enda nætur. + +Sé ég örlög +ýmisleitan +okkur ókominn +aldur skapa, - +en það óskýrt +að augum mér +kemur líkt sem +á köldu hausti +stjörnuglampi +af sléttum sjó. + +Hlægir mig nú það, +er mig hrelldi áður +ungan of mjög, +þá er ég fór einn saman. +Gott er að ganga +geði kvíðlausu +ófarið, örstutt, +æviskeið. - + +### UM HANA SYSTUR MÍNA + +Sáuð þið hana systur mína +sitja lömb og spinna ull? +Fyrrum átti eg falleg gull. +Nú er ég búinn að brjóta og týna. + +Einatt hefur hún sagt mér sögu. +Svo er hún ekki heldur nízk: +hún hefur gefið mér hörpudisk +fyrir að yrkja um sig bögu. + +Hún er glöð á góðum degi, +glóbjart liðast hár um kinn, +og hleypur, þegar hreppstjórinn +finnur hana á förnum vegi. + +### HEIÐLÓARKVÆÐI + +Snemma lóan litla í +lofti bláu "dírrindí" +undir sólu syngur: +"Lofið gæzku gjafarans, +grænar eru sveitir lands, +fagur himinhringur. + +Ég á bú í berjamó, +börnin smá, í kyrrð og ró, +heima í hreiðri bíða. +Mata ég þau af móðurtryggð, +maðkinn tíni þrátt um byggð +eða flugu fríða". + +Lóan heim úr lofti flaug, +ljómaði sól um himinbaug, +blómi grær á grundu, +til að annast unga smá. - +Alla étið hafði þá +hrafn fyrir hálfri stundu! + +### MÓÐURÁST + +Fýkur yfir hæðir og frostkaldan mel, +í fjallinu dunar, en komið er él, +snjóskýin þjóta svo ótt og svo ótt. +Auganu hverfur um heldimma nótt +vegur á klakanum kalda. + +Hver er in grátna, sem gengur um hjarn, +götunnar leitar, og sofandi barn +hylur í faðmi og frostinu ver, +fögur í tárum? En mátturinn þver. +Hún orkar ei áfram að halda. + +"Sonur minn góði! Þú sefur í værð, +sérð ei né skilur þá hörmunga stærð, +sem að þér ógnar og á dynja fer. +Eilífi guðssonur, hjálpaðu mér +saklausu barninu að bjarga. + +Sonur minn blíðasti, sofðu nú rótt. +Sofa vil ég líka þá skelfingarnótt. +Sofðu! Ég hjúkra og hlífi þér vel. +Hjúkrar þér móðir, svo grimmasta él +má ekki fjörinu farga". + +Fýkur yfir hæðir og frostkalda leið, +fannburðinn eykur um miðnæturskeið. +Snjóskýjabólstrunum blásvörtu frá +beljandi vindur um hauður og lá +í dimmunni þunglega þýtur. + +Svo, þegar dagur úr dökkvanum rís, +dauð er hún fundin á kolbláum ís. +Snjóhvíta fannblæju lagði yfir lík +líknandi vetur, en miskunnarrík +sól móti sveininum lítur. + +Því að hann lifir og brosir og býr +bjargandi móður í skjólinu hlýr, +reifaður klæðnaði brúðar, sem bjó +barninu værðir og lágt undir snjó +fölnuð í frostinu sefur. + +Neisti guðs líknsemdar, ljómandi skær, +lífinu beztan er unaðinn fær, +móðurást blíðasta, börnunum háð, +blessi þig jafnan og efli þitt ráð +guð, sem að ávöxtinn gefur. + +### ÓHRÆSIÐ + +Ein er upp til fjalla, +yli húsa fjær, +út um hamra hjalla, +hvít með loðnar tær, +brýzt í bjargarleysi, +ber því hyggju gljúpa, +á sér ekkert hreysi +útibarin rjúpa. + +Valur er á veiðum, +vargur í fuglahjörð, +veifar vængjum breiðum, +vofir yfir jörð, +otar augum skjótum +yfir hlíð og lítur +kind, sem köldum fótum +krafsar snjó og bítur. + +Rjúpa ræður að lyngi, +- raun er létt um sinn, - +skýzt í skafrenningi +skjótt í krafsturinn, +tínir mjöllu mærri +mola, sem af borði +hrjóta kind hjá kærri, +kvakar þakkarorði. + +Valur í vígahuga +varpar sér á teig, +eins og fiskifluga +fyrst úr löngum sveig +hnitar hringa marga. +Hnífill er að bíta. +Nú er bágt til bjarga, +blessuð rjúpan hvíta! + +Elting ill er hafin. +Yfir skyggir él. +Rjúpan vanda vafin +veit sér búið hel. +Eins og álmur gjalli, +örskot veginn mæli, +fleygist hún úr fjalli +að fá sér eitthvert hæli. + +Mædd á manna bezta +miskunn loks hún flaug, +inn um gluggann gesta +guðs í nafni smaug. +Úti garmar geltu, +gólið hrein í valnum. +Kastar hún sér í keltu +konunnar í dalnum. + +Gæðakonan góða +grípur fegin við +dýri dauðamóða, - +dregur háls úr lið. +Plokkar, pils upp brýtur, +pott á hlóðir setur, +segir: "Happ þeim hlýtur!" - +og horaða rjúpu étur. + +### GRÁTITTLINGURINN + +Ungur var ég, og ungir +austan um land á hausti +laufvindar blésu ljúfir, +lék ég mér þá að stráum. + +En hretið kom að hvetja +harða menn í bylsennu. +Þá sat ég ennþá inni +alldapur á kvenpalli. + +Nú var trippið hún Toppa, +tetur á annan vetur, +fegursta hross í haga, +og hrúturinn minn úti. + +Þetta var allt, sem átti +ungur drengur, og lengi +kvöldið þetta hið kalda +kveið ég þau bæði deyði. + +Daginn eftir var aftur +upp stytt, svo að menn hittu +leið um snjóvgar slóðir +storðar, og frost var orðið. + +En það, sem mest ég unni, +úti, Toppa og hrútur, +óvitringarnir ungu +einmana kuldann reyna. + +Sekur var ég og sækja +sjálfsagt hlaut ég með þrautum +aleigu mína og ala +ötull bæði við jötu. + +Hvernig fór? Hér ég gjarna +hjarta mannlegt um sanna, +að, hvað sem hinu líður, +hjartað gott skóp oss drottinn. + +Ég fann á millum fanna +í felling á blásvelli +lófalága við þúfu +lítinn grátittling sýta. + +Flogið gat ekki hinn fleygi, +frosinn niður við mosa. +Augunum óttabljúgum +á mig skaut dýrið gráa. + +Hefði eg þá séð, mér hefði +hundrað Toppum og undrum +ótal hornóttra hrúta +heitið drottinn, ég votta: + +Abrahams dýrðardæmi +drengur í litlu gengi +aldrei á Ísafoldu +eftir breytir, en neitar. + +Kalinn drengur í kælu +á kalt svell, og ljúft fellur, +lagðist niður og lagði +lítinn munn á væng þunnan. + +Þíddi allvel og eyddi +illum dróma með stilli, +sem að frostnóttin fyrsta +festi með væng á gesti. - + +Gesti yðar! Því ástar +óhvikul tryggð til byggða +vorra leiðir á vorum +vegarslynga tittlinga. + +Lítill fugl skauzt úr lautu, +lofaði guð mér ofar. +Sjálfur sat ég í lautu +sárglaður og með tárum. + +* + +Felldur em eg við foldu +frosinn og má ei losast. +Andi guðs á mig andi, +ugglaust mun ég þá huggast. + +### SLÁTTUVÍSA + +Fellur vel á velli +verkið karli sterkum, +syngur enn á engi +eggjuð spík og rýkur +grasið grænt á mosa. +Grundin þýtur undir. +Blómin bíða dóminn. +Bítur ljár í skára. + +Gimbill gúla þembir, +gleður sig og kveður: +"Veit ég, þegar vetur +vakir, inn af klaka +hnífill heim úr drífu +harður kemst á garða, +góðir verða gróðar +gefnir sauðarefni". + +Glymur ljárinn, gaman! +Grundin þýtur undir. +Hreyfir sig í hófi +hrífan létt mér ettir, +heft er hönd á skafti, +höndin ljósrar drósar. +Eltu! Áfram haltu! +Ekki nær mér, kæra! + +Arfi lýtur orfi. +Allar rósir falla. +Stutta lífið styttir +sterkur karl í verki. +Heft er hönd á skafti, +hrífan létt mér ettir! +Glymur ljárinn, gaman! +Grundin þýtur undir. + +### SÓLSETURSLJÓÐ + +Hóglega, hæglega, +á hafsæng þýða, +sólin sæla, +síg þú til viðar. +Nú er um heiðar +himinbrautir +för þín farin +yfir frjóvga jörð. + +Halla þú, röðull, +höfði skínanda, +bráhýr, brosfagur +að brjósti Ránar, +sæll og sólbjartur, +sem þá, er stefndir +bratta braut +á bogann uppsala. + +Blessuð, margblessuð, +ó, blíða sól, +blessaður margfalt +þinn beztur skapari, +fyrir gott allt, +sem gjört þú hefur +uppgöngu frá +og að enda dags. + +Dreifðir þú, dagstjarna, +dimmu nætur, +glöð, af glóbreiðri +götu þinni. +Ljós fékkstu lýðum +langar, á gangi, +dagstundir dýrar, +ó, dagstjarna! + +Vaktir þú fugla +og fögur blóm vaktir, +söng þér að syngja +og sætan ilm færa. +Hníg nú hóglega, +hægt og blíðlega, +vegþreytir vindsala, +ó, vegstjarna! + +Hníg nú hóglega +í hafskautið mjúka, +röðull rósfagur, +og rís að morgni, +frelsari, frjóvgari, +fagur guðs dagur, +blessaður, blessandi, +blíður röðull þýður! + +Hóglega, hæglega +hníg þú að hvílu, +skeiðþreytir skjótur, +en skamma hríð þó +bíð þú, að ástar- +augum hlýjum +bládöggvað brosir +á brjóst jarðar. + +Drag nú hið blástirnda, +blysum leiftranda +salartjald saman +yfir sæng þinni, +brosi boðandi, +að af beði munir +bráðlega hresstur +á himin snúa. + +Vonin vorblíða, +vonin ylfrjóva +drjúpi sem dögg +af dýrðarhönd þinni, +döpur mannhjörtu +í dimmu sofandi +veki, sem vallblómin +vekur þú á morgni. + +Mynd guðs hin máttka! +Mjúkir draumar +glaðlega vakna +við geisla þína, +eins og náttöldur +norðurstrauma +bláljósar blika +birtu þína við. + +Hníg því hóglega +í hafskautið mjúka, +röðull rósfagur, +og rís að morgni, +frelsari, frjóvgari, +fagur guðs dagur, +blessaður, blessandi, +blíður röðull þýður! + +Hæglega, hóglega +hníg þú að hvílu, +skeiðþreytir skjótur, +en skamma hríð þó +leng hinar blíðu, +bjaamaljúfu, +ástarauðugu +aftanstundir. + +Skrýð þig svo aftur +skrúða gulldregnum, +morgunskrúða +menn gleðjanda. +Bú þig að öllu +upp að koma +fagur og fram bruna +í fullu veldi. + +Og bjarma breið +á brúnir fjalla, +áður ljósan dag +leiðir á himin. +Leng þú blessaðan +blíðuroða +uppkomu þinnar +og undirgöngu. + +Vekur þú von +og vekur þú bæn, +hvenær sem dapri +dimmu hrindir, +og augu kætir +allrar skepnu; +þökk er og lofgjörð +á þinni leið. + +Vekur þú von +og vekur þú bæn, +er þú í ljóma +líður af himni, +aftur í ljóma +upp að renna; +þökk er og lofgjörð +á þinni leið. + +Hníg þú hóglega +í hafskautið mjúka, +röðull rósfagur, +og rís að morgni, +frelsari, frjóvgari, +fagur guðs dagur, +blessaður, blessandi, +blíður röðull þýður! + +### SUMARDAGSMORGUNINN FYRSTA 1828 + +Í rúmi mínu + +Flýttu +fjalla yfir brún, +dagur, þér, það er ei þörf á Kamtsjatka bíða! +Lengur +ligg ég ei á dún +en læt nú strax fara að hringja til tíða. +Þá skalt +þú ei sjá, hvað er +heiðarleg hátíð, sem halda ætla ég núna. +Það er +æði asi á mér. +Eg vil fljótt hafa messuna búna. + Veizlu síðan vind ég að, + vertu kominn hér um það. + Súpa + virðist vera mál + vetrar umliðins burtfararskál. + +Sumardagurinn: + +"Hygg að, +- haf þú kyrrt um þig! +Senn kem ég, sumarið sendur ykkur að boða.. +Hátt á +himinfólgnum stig +hleyp ég skrýddur í morgunsins roða. +Hulinn, - +himins er það ráð, - +bind ég á baki þér bagga örlaga þungan. +Gata; +grjóti nokkru stráð, +gjörir fótvissan vegfara ungan. + Halt því kvíðlaus áfram enn! + Oft er jarðnesk gæfa tvenn: + Saklaust + sefur auga í værð, + syrgir andvaka á gullbeði flærð. + Halt því kvíðdaus áfram enn!" + Ójá, dagur, komdu senn! + Súpa + virðist vera mál + vinar tryggasta hamingjuskál. + +### Á SUMARDAGSMORGUNINN FYRSTA 1842 + +Þökk sé þér, guð, fyrir þennan blund, +er þá ég um síðstu vetrarstund. +Hann hressti mig og huga minn +huggaði fyrir máttinn þinn. +Nú hefur sumarsólin skær +sofnaðan þínum fótum nær +vakið mig, svo að vakni þín +vegsemdin upp á tungu mín. + +Höfundur, faðir alls, sem er +um alheimsgeiminn, hvar sem fer, +þú, sem að skapar ljós og líf, +landinu vertu sverð og hlíf. +Myrkur og villu og lygalið +láttu nú ekki standa við, +sumarsins góða, svo að vér +sannlega njótum rétt sem ber. + +Vorblómin, sem þú vekur öll, +vonfögur, nú um dali og fjöll, +og hafblá alda og himinskin +hafa mig lengi átt að vin. +Leyfðu nú, drottinn, enn að una +eitt sumar mér við náttúruna. +Kallirðu þá, ég glaður get +gengið til þín hið dimma fet. + +### NÓTT OG MORGUNN + +Röðull brosti, rann að næturhvílu +Ránar til, og fögrum sjónum brá +undan léttri utanbakkaskýlu. +Aldan beið, þar guðinn studdist á. - +Horfðu tindar himinljósi viður. +Helgur roði um snjóvgar kinnar flaug. +Íslands verndarengill, farinn niður, +Ingólfs bjartur stóð á gleymdum haug. + +Hreyfðist land af helgum snortið fótum. +Hné þá sól um öldugarðsins bak. +Stormkast undan Snæfells köldu rótum +stólpaský að vesturáttu rak. +Ljós var horfið, hrikti í dægurgrindum, +hrímköld nótt um stjörnuhvolfið ók. +Byrg oss! fel oss! brast í jökultindum. +Byrg oss, fel oss! ströndin endurtók. + +Allt var kyrrt. Frá utanfjarðargrunni +einstök vakin bára stundum hvein. +Rödd er heyrð í rökkurhálfdimmunni, +rödd, sem hrærði klakabundinn stein. +Hún kvað margt um horfinn þjóðaranda, +hreystibrest og kveifarlíf og neyð. +Hræddist Ísland, heyrði búinn vanda, +harmastöfum barna sinna kveið. + +Rann þá dagur, reis af austurstraumum +röðulskin, og norðar heldr en fyrr. +Fjör kom nýtt í fætur máttarnaumum, +fýstist enginn lengur sitja kyrr. +Hver er gnýr, sem gegnum loftið hleypur +- Garðarseyjar losna festarbönd -? +"Förum nú og fyrir norðan Greipur +felumst undir Grænlands jökulströnd". + +### HEIMA + +Suður fórumk um ver, +en ég svarna ber +öflga eiðstafi +úr úthafi: +munarmyndum +mjög þótt yndum, +heimrof mig finni +hjá Huldu minni. + +Þar er barmi blíður +og blómafríður +runnur í reit, +er ég rökkri sleit, +dalur, sól og sær +og systur tvær, +einkamóðir +og ástvinir góðir. + +Þar er búþegn beztur, +bóndi og prestur, +til þess tel ég vottinn, - +trúir enn á drottin +og á sjálfan sig, +svo sem ég á mig. +Þar er líf í landi +og ljóshæfur andi. + +### ANNES OG EYJAR + +l. Ólafsvíkurenni + +Ríðum við fram um flæði +flúðar milli og gráðs +fyrir Ólafsvíkurenni +utan við kjálka láðs. + +Fjörðurinn bjartur og breiður +blikar á aðra hlið, +tólf vikur fullar að tölu - +tvær álnir hina við. + +Hvort á nú heldur að halda +í hamarinn svartan inn, +ellegar út betur - til þín, +Eggert, kunningi minn? + + +2. Hornbjarg + +Yzt á Hornströndum heitir +Hornbjarg og Kópatjörn. +Þeir vita það fyrir vestan, +þar verpir hvítur örn. + +Um sumarnótt, er sveimar +sól yfir norðurslóð +og þoka sígur um sjóinn, +hann situr rauður sem blóð. + +Og örninn lítur ekki +oná hið dimma haf, +og horfir í himinljómann. +Hafskipið sökkur í kaf. + + +3. Drangey + +Tíbrá frá Tindastóli +titrar um rastir þrjár. +Margt sér á miðjum firði +Mælifellshnjúkur blár. + +Þar rís Drangey úr djúpi. +Dunar af fuglasöng +bjargið, og báðum megin +beljandi hvalaþröng. + +Einn gengur hrútur í eynni. +Illugi Bjargi frá +dapur situr daga langa +dauðvona bróður hjá. + + +4. Kolbeinsey + +Bræðurnir sigldu báðir +burtu frá ungri mey, +langt burt frá systur sinni, +að sækja í Kolbeinsey. + +Þar er svo dúnað í dúni, +að djankinn liggur þar +bara bráðendis hlessa +og breiðir út lappirnar. + +Ömurlegt allt mér þykir +útnorður langt í sjá. +Beinin hvítna þar beggja +bræðranna klettinum á. + + +5. Máney + +Ég uni ekki útí Máney, +og er hún þó skemmtileg. +Brimaldan ber þar og lemur +bjargið á annan veg. + +Og hins vegar ungar hrjóta +úr hreiðrum með nef og stél, +og eggin velta öll oní grjótið. +af því hún hristist svo vel. + +Ég uni mér ekki útí Máney +og á þó að dveljast hér, +því ég er bringubrotinn, - +úr bjarginu hrundi að mér. + + +6. Skrúðurinn + +Austast fyrir öllu landi +af einhverjum veit ég stað, +fjalleyju grænni og góðri, +getið þér, hver muni það. + +Hún heitir Skrúður og skýlir +Skrúðsbónda, öldnum hal. +Úti fyrir Fáskrúðsfirði +þú finnur það eyjarval. + +Og hvenær sem ég hugsa +um hrútinn og pækilinn, +mér er sem ég sjái hann Gísla +og hann séra Ólaf minn. + + +7. Suðursveit + +Suðursveit er þó betri +en Seltjarnarnesið var. +Taðan er töluvert meiri +og tunglið rétt eins og þar. + +Hitinn úr hófi keyrir, +en honum uni ég þó. +Börnin hér bograst í skuggann +og blaðra sem hvolpar í mó. + +Og bæjardyraburstin +ber um, hvað margt sé féð: +Sex þúsund sauðarleggi +er Sigfús minn búinn með. + + +8. Réttarvatn + +Efst á Arnarvatnshæðum +oft hef ég fáki beitt. +Þar er allt þakið í vötnum, +þar heitir Réttarvatn eitt. + +Og undir norðurásnum +er ofurlítil tó, +og lækur líður þar niður +um lágan Hvannamó. + +Á engum stað ég uni +eins vel og þessum mér. +Ískaldur Eiríksjökull +veit allt, sem talað er hér. + + +9. Hestklettur + +Meðan Hestklettur heldur +og hinum megin er ás +og bandi bundið á milli, +er brú yfir þessa rás. + +Jökulsárnar, þær æða +ofan á löndin slétt +og velta eins og vitlaus skepna +votan framan um klett. + +En Jóni tókst í Tungu +að tölta yfir þessa geil. +Bandspotta batt hann þar yfrum, +bóndinn, og kallar það seil. + + +10. Arnarfellsjökull + +Uppi undir Arnarfelli, +allri mannabyggð fjær, +- það er eins satt og eg sit hér - +þar sváfu Danir í gær. + +Og er þeir fóru á fætur, +fengu þeir eld sér kveikt, +og nú var setið og soðið +og sopið og borðað og steikt. + +Ókunnugt allt er flestum +inni um þann fjallageim. +Þeir ættu að segja oss eitthvað +af Arnarfellsjökli þeim. + + +11. Sogið + +Við Sogið sat ég í vindi, +sækaldri norðanátt, +og þótti þurrleg seta. +Þar var af lifandi fátt. + +En sólin reis in sæla, +sveipaði skýjum frá. +Upp komu allar skepnur +að una lífinu þá. + +Og svo er margt af mýi, +- mökk fyrir sólu ber - +að Þórður sortnaði sjálfur +og sópaði framan úr sér. + + +12. Tómasarhagi + +Tindrar úr Tungnafellsjökli, +Tómasarhagi þar +algrænn á eyðisöndum +er einn til fróunar. + +Veit ég áður hér áði +einkavinurinn minn. +Aldrei ríður hann oftar +upp í fjallhagann sinn. + +Spordrjúgur Sprengisandur - +og spölur er út í haf. +Hálfa leið hugurinn ber mig. +Það hallar norður af. + +### VÍTI + +Eldgígur vestan undir Kröflufjalli + +Bar mig á brenndum auri +breiðar um funaleiðir +blakkur að Vítis bakka, +blæs þar og nösum hvæsir. +Hvar mun um heiminn fara +halur yfir fjöll og dali +sá, er fram kominn sjái +sól að verra bóli? + +Hrollir hugur við polli +heitum í blárri veitu. - +Krafla með kynja afli +klauf fjall og rauf hjalla. +Grimm eru í djúpi dimmu +dauðaorg, þaðan er rauðir +logar yfir landið bljúga +leiddu hraunið seydda. + +### FREMRINÁMAR + +Reið ég yfir bárubreið +brunasand, en jódunur, +kalt var hregg og átt ill, +ýtum skemmtu dálítið. +Holur nafar grjót grefur. +Grunar mig, að seint muni +Úlfur karl, þótt aur skjálfi, +ámur fylla úr þeim nám. + +### ALDARHÁTTUR + +Kveðið á reið fyrir neðan Fróðá + +Hingað gekk hetjan unga +heiðar um brattar leiðir +fanna mundir að finna +fríða grund í hríð stundum. +Nú ræðst enginn á engi, +í ástarbáli fyrr sálast, +styttubands storð að hitta, +stýrir priks yfir mýri. + +### AÐ VAÐI LIGGUR LEIÐIN + +Að vaði liggur leiðin, +lífs á fljótið, en brjóta +háa bakka hvekkir. +Hafurmylkingar fylkja. +Yfir ættum að klifa +ofar þá, ef guð lofar. +Drögum ei par að duga, +og dengjum oss í strenginn! + +### ÚTI Í VESTMANNEYJUM + +Veit ég úti í Vestmanneyjum +verður stundum margt í leyni. +Séð hef ég þar setið vera +Sigmundar á votum steini. + +Hárið sítt af höfði drýpur +hafmeyjar í fölu bragði. +Augum sneri hún upp að landi +og á brjóstið hendur lagði. + +Viti menn, að vogameyjar +vondar sízt eru draugaskottur. +Sat hjá henni í síðum klæðum +séra Jón minn píslarvottur. + +Sungu þau bæði sætt og lengi, +svo mér yndi var að heyra. +Lagið var sem lagargjálfur, +lagði eg við það sólgið eyra. + +Það var margt um Tyrkjann talað. +Tókst svo bæn - sem nú er vandi: +"Vísaðu leið og flyttu, faðir; +friðsamlega sjófarandi". + +Byssumaður, í bragði dimmur, +bjóst þá til að skjóta í leyni. +Selir honum sýndust móka +Sigmundar á votum steini. + + +Um það var svo kveðið: + +Selur sefur á steini, +svartur á brún og brá, +dindill aftan á. - +Maður lá í leyni. + +Höfuðið hæfa vildi. +Hokinn bak við stein +skaut og hátt við hrein +gæfumaðurinn gildi. + +Haldið þið ekki hann hitti? +Hinn fór samt á stað, +er kúlan kom honum að - +á dindilinn frá eg hún dytti. + +### FORMANNSVÍSUR + +I. Framróður + +Hafaldan háa! +Hvað viltu mér? +Berðu bátinn smáa +á brjósti þér, +meðan út á máa- +miðið ég fer. + +* + +Svalt er enn á seltu, +sjómenn vanir róa. +Köld er undiralda, +árum skellur bára. +Dylur dimmu éli +dagsbrún jökulkrúna. +Svæfill sinnir ljúfum +svanna heima í ranni. + +Föður minn á miði +móðir syrgði góðan. +- Köld er undiralda, +árum skellur bára. +Bræður mína báða +bæjum sneyddi ægir. +- Svalt er enn á seltu, +sjómenn vanir róa. + +Einatt ölduljóni +á óalegan sjóinn +hrundu hart um sanda +hraustir menn úr nausti. +Heill kom heim að öllu +halur og færði valinn +hlut í háum skuti +hjúa til og búa. + +Björgum enn til bjargar +báti, verum kátir! +Svæfill sinnir ljúfum +svanna heima í ranni. +Nótt er enn, þótt ótta +af sé liðin hafi. +Dylur dimmu éli +dagsbrún jökulkrúna. + +Hræðumst lítt, þótt leiði +löður árarblöðum +eld í spor og alda +úfin froðu kúfist. +Rérum fast úr fjöru, +fram gekk tamin snekkja +vel á vogi svölum. +Við erum nú á miði! + + +II. Seta + +Mardöll á miði +í myrkbláum sal! +Seiddu nú að sviði +sækindaval. +Láttu fara í friði +fengsælan hal. + +* + +Stjóri sökk að sjávargrunnum, +situr yfir kvikum unnum +veiðimaður á valtri skeið. +Förum öngul beittan beita, +báru knýja og fiska leita +þöngli nær á þorskaleið. + +Bítur undir borði gráu. +Blótaðu ekki seiði smáu, +slepptu því heldur, maður minn! +Ég er að draga þorsk úr þara. +Það varð honum feigðarsnara, +að hann gleypti öngulinn. + +Hjálpi drottinn höndum öllum! +Hækkar dagur á austurfjöllum, +senn á báru sólin skín. +Dragðu, sveinn, úr djúpi köldu +dagverð þinn, sem býr í öldu. +Hlutartalan hækki þín! + +Hvað mun hugsa þessi þorri, +þilju sem að undir vorri +háskatólin hremma fer? +Þótt þeir sjái, séu dregnir +synir þeirra, beitufegnir +gamlir þorskar gleyma sér. + +Ég hef varla við að draga. +Verði það svona alla daga, +meðan nokkur maður rær! +Nú er hlaðinn bátur að borði, +blessaður unninn nægtaforði. +Þökk og heiður sé þér, sær! + + +III. Uppsigling + +Útrænan blíða, +sem oft kyssir mig! +Láttu nú líða +yfir leifturstig +fleyið mitt fríða, +svo faðmi ég þig. + +* + +Reisum tré, svo renni að ósi +rangajór, því langar stórum +nú að heilsa bæ og búi +báruþegn, er stýri gegnir. +Breiðum voð, svo gráan græði +getum kvatt, því nóg er setið. +Sælla vart er eitt að öllu +en að sigla heim til kvenna. + +Bíður kona heima á hlaði, +hrædd og fegin seglið eygir, +sér, að hleypur, hyggur steypist, +hrannaljón á djúpu lóni. +Vonin dregur, óttinn agar, +undan lítur þá og flýtir +sér að kyssa, sinn að blessa +son og minn, á rjóðar kinnar. + +Herðið, drengir, hratt á strengjum, +horfði við á goluborða +nú að leystust tengslin traustu, +teygir blakkur sævar makka. +Geisa tekur gangi fúsum +gnoðin mín um hvíta boða. +Sælla vart er eitt að öllu +en að sigla heim til kvenna. + +Lægjum voðir nú í næði, +nóg er siglt, sem fyrr var róið. +Knararstefni vel að vörum +víkjum undan sævarríki. +Þökkum drottni, þeim er hlotnast +það oss lét, að allir getum +hraustir borið heim að nausti +hlutarval úr fermdum skuti. + +### Í SPÁNSKA SJÓNUM 31. ÁGÚST 1832 + +Skáldið: + +Hví viltu, andsvala +austankul, +svo á segli vaka? +Hví viltu meina +mér að sjá +Dofra sólháu sali? + +Hví viltu meina +manni sjóleiðum +hæðir Hertu líta? +Dökkt er á djúpi, +dimmar öldur rísa. +Mig langar landsýn í. + + +Vindurinn: + +Vegu bláa +vestur um haf +hleyp ég himinborinn, +þangað, sem Garðars +gamla ey +há úr hafi rís. + +Langar mig þar +um ljósan tind +gullnu skýi skauta +og í djúpum +dal að kyssa +mundarfagra mey. + +Svo á ég heiti, +sem ég um heiminn fer +allan ýmsa vegu: +næðingur kem ég að norðan, +næturkul að austan, +vorgola að sunnan. +vestan hafræna. + + +Skáldið: + +Heyr þú, hafræna +in himinborna! +Flýt þér Fróns úr dölum. +Kysstu samt fyrst, +og kossinn færðu +mér frá dalanna dætrum! + +### ÚR SALTHÓLMSFERÐ + +I. + +Gekk ég í Gribbskógi, +gola þaut í laufi, +flaug örn yfir, +ormur skreið í mosa. +Þá var dauflegt, +er dagskvöldi á +þutu vargar +und viðarrótum. + +Ein sat hún úti +augnahýr +og mjúkhent +á mosaþúfu, +þar sem lambkind +lék sér í tjáðri. +Kyssti ég kotbarn, +það kostar ekki par. + + +II. + +Sá ég í Hárskógi +hindir bíta +grasið græna +og gullinknappa. +Þá voru blöðrur +á báðum fótum +og iljar illsárar +á aumum mér. + +### DRAUGSVÍSUR + +Heygður var ég í haugi, +hægir mundu draugi +draumar um dimma grímu +og dagshöfginn þungi. +Nú er ég barinn af báru, +baugum er stolinn haugur, +horgreip og hryggur er barinn. +Hreiðar á sér ekki leiði. +Hreiðar á sér ekki leiði. + +* + + Aftur vil ég hverfa, + sem ég áður var, + undir græna + grundar skýlu. + Beri, beri + bleikar kjúkur + Hreiðars í haug + að höfði mínu. + +### UNDIR ANNARS NAFNI + +Hví und úfnum +öldubakka +sjónir indælar +seinkar þú að fela, +blíða ljós, +að bylgjuskauti +hnigið hæðum frá? + +Hve máttu augum +eymda fjöld +láðbyggjenda líta? +Margir eru menn, +þó er mæða fleiri +hvers und brjósti byrgð. + +En þú brosir +og burtu snýr +nýt á niðurvegu, +sól sorglausa! +Sofnir eru laukar, +þeirs lifðu ljós þitt við. + +Austur sé ég fljúga +að Esjutindi +hrafn af húsmæni, +þar er gráföl ský, +golu rekin, +hefjast himni mót. + +Bíddu, austankul! +Andvörp mín +máttu ei of bylgju bera +til hinnar ungu, +athvarfslausu, +sem mitt hjarta hlaut. + +Hví svo, hugarsteinn, +hulins kvíða +svella sútir þér? +Máttkan engil +sá inn mikli faðir +veikum að vörn léði. + +### EINBÚINN + +Yfir dal, yfir sund, +yfir gil, yfir grund +hef ég gengið á vindléttum fótum. +Ég hef leitað mér að, +hvar ég ætti mér stað, +út um öldur og fjöll og í gjótum. + +En ég fann ekki neinn, +ég er orðinn of seinn, +þar er alsett af lifandi og dauðum. +Ég er einbúi nú +og ég á mér nú bú +í eldinum logandi rauðum. + +### IN AQUILONEM NOCTURNUM + +Þegi þú, vindur! +Þú kunnir aldregi +hóf á hvers manns hag. +Langar eru nætur, +þars þú, inn leiðsvali, +þýtur í þakstráum. + +### ANDVÖKUSÁLMUR + +Svei þér, andvakan arga, +uni þér hver sem má. +Þú hefur mæðumarga +myrkurstund oss í hjá +búið með böl og þrá, +fjöri og kjark að farga. +Fátt verður þeim til bjarga +sem nóttin níðist á. + +Myrkrið er manna fjandi, +meiðir það líf og sál, +sídimmt og síþegjandi +svo sem helvítis bál, +gjörfullt með gys og tál. +Veit ég, að vondur andi +varla í þessu landi +sveimar um sumarmál. + +Komdu, dagsljósið dýra! +Dimmuna hrektu brott. +Komdu, heimsaugað hýra! +Helgan sýndu þess vott, +að ætíð gjörir gott, - +skilninginn minn að skýra, +skepnunni þinni stýra. +Ég þoli ekki þetta dott. + +Guðað er nú á glugga. +Góðvinur kominn er +vökumanns hug að hugga. +Hristi ég nótt af mér, +uni því eftir fer. +Aldrei þarf það að ugga: +aumlegan grímuskugga +ljósið í burtu ber. + +### ALSNJÓA + +Eilífur snjór í augu mín +út og suður og vestur skín, +samur og samur út og austur. +Einstaklingur, vertu nú hraustur! + +Dauðinn er hreinn og hvítur snjór. +Hjartavörðurinn gengur rór +og stendur sig á blæju breiðri, +býr þar nú undír jörð í heiðri. + +Víst er þér, móðir, annt um oss. +Aumingja jörð með þungan kross +ber sig það allt í ljósi lita, +lífið og dauðann, kulda og hita. + +### Ó, ÞÚ JÖRÐ + +Ó, þú jörð, sem er +yndi þúsunda, +blessuð jörð, sem ber +blómstafi grunda, +sárt er, að þú sekkur undir mér. + +Hef ég mig frá þér hér +og hníg til þín aftur, +mold, sem mannsins er +magngjafi skaptur, +sárt er, að þú sekkur undir mér. + +### SÓLHVÖRF 22. DESEMBER 1844 + +Eilífur guð mig ali +einn og þrennur dag þenna. +Lifa vil eg, svo ofar +enn ég líti sól renna. +Hvað er glatt sem hið góða +guðsauga? Kemur úr suðri +harri hárrar kerru, +hjarðar líkn og jarðar. + +### JÓLAVÍSA + +Jólum mínum uni ég enn, - +og þótt stolið hafi +hæstum guði heimskir menn, +hef ég til þess rökin tvenn, +að á sælum sanni er enginn vafi. + +### Á NÝJÁRSDAG 1845 + +Svo rís um aldir árið hvert um sig, +eilífðar lítið blóm í skini hreinu. +Mér er það svo sem ekki neitt í neinu, +því tíminn vill ei tengja sig við mig. + +Eitt á ég samt, og annast vil ég þig, +hugur mín sjálfs í hjarta þoli vörðu, +er himin sér og unir lágri jörðu, +og þykir ekki þokan voðalig. + +Ég man þeir segja: "Hart á móti hörðu", +en heldur vil ég kenna til og lifa, +og þó að nokkurt andstreymi ég bíði, +en liggja eins og leggur uppi í vörðu, +sem lestastrákar taka þar og skrifa, +og fylla, svo hann finnur ei, af níði. + +### MÖÐRUVALLASTEINHÚS + +Vík hér að, vinur, +sem á vegi fer, +og hygg á haglegt smíði. +Þannig verður góðum +góðu bætt +vel umborið böl. + +Gleymdar eru rústir, +er ruku fyrr, - +öllum sorgleg sjón, - +þars við fjallbrún +ið fagurgjörva +mælir sig mannvirki. + +Stattu, steinhús, +stólpa heilli! +Þökk sé þeim, er vel að vinnur! +Stattu vel, steinhús, +og standi vel +gæfa þíns góða herra! + +* + + Hver er sjón, + er ég sjá þykjumst? + Mun ei engill + ofan farinn + grandi burt + frá garði snúa? + +### ALÞING HIÐ NÝJA (1840) + +Hörðum höndum +vinnur hölda kind +ár og eindaga, +siglir særokinn, +sólbitinn slær, +stjörnuskininn stritar. + +Traustir skulu hornsteinar +hárra sala. +Í kili skal kjörviður. +Bóndi er bústólpi, +bú er landstólpi, +því skal hann virður vel. + +Fríður foringi +stýri fræknu liði, +þá fylgir sverði sigur. +Illu heilli +fer að orustu +sá, er ræður heimskum her. + +Sterkur fór um veg, +þá var steini þungum +lokuð leið fyrir. +Ráð-at hann kunni, +þótt ríkur sé, +og hefðu þrír um þokað. + +Bera bý +bagga skoplítinn +hvert að húsi heim. +En þaðan koma ljós +hin logaskæru +á altari hins göfga guðs. + +* + +Vissi það að fullu +vísir hinn stórráði. +Stóð hann upp af stóli, +studdist við gullsprota: +"Frelsi vil ég sæma +framgjarnan lýð, +ættstóran kynstaf +Ísafoldar. + +Ríða skulu rekkar, +ráðum land byggja, +fólkdjarfir fyrðar +til fundar sækja, +snarorðir snillingar +að stefnu sitja, +þjóðkjörin prúðmenni +þingsteinum á. + +Svo skal hinu unga +alþingi skipað +sem að sjálfir þeir +sér munu kjósa. +Gjöf hef ég gefið, +gagni sú lengi +foldu og fyrðum, +sem ég fremst þeim ann". + +Þögn varð á ráðstefnu, +þótti ríkur mæla. +Fagureygur konungur +við fólkstjórum horfði. +Stóð hann fyrir stóli, +studdist við gullsprota. +Hvergi getur tignarmann +tigulegri. + +* + +Sól skín á tinda. +Sofið hafa lengi +dróttir og dvalið +draumþingum á. +Vaki vaskir menn! +Til vinnu kveður +giftusamur konungur +góða þegna. + +### ANNAÐ KVÆÐI UM ALÞING (1843) + +"Ríða skulu rekkar, +ráðum land byggja, +fólkdjarfir fyrðar +til fundar sækja, +snarorðir snillingar +að stefnu sitja, +þjóðkjörin prúðmenni +þingsteinum á. + +Svo skal hinu unga +alþingi skipað +sem að sjálfir þeir +sér munu kjósa. +Gjöf hef ég gefið, +gagni sú lengi +foldu og fyrðum, +sem ég fremst þeim ann". (Alþing hið nýja, 1840) + + +Það var nú þá, nú er sungið svona: + +Drottinn gaf og hann drottinn tók, +drottins nafnið lofað sé. +Einatt það mér yndi jók, +eg er gerður úr steini og tré. +Seinast, þegar ég sá í gær +sannlega komna háðung nær +landa mína - ég lifði samt. +Lítið er lítið ag stutt er skammt. + +Og lifði vel - og lízt það sé +löglegt verk, þó að fjórtán manns +þjóðina mína hneppi í hlé. +Hún á að vera þrælafans. +Og þeir, sem að hittu á þennan veg, +þeir eru sigldir eins og ég, +utan þetta einn eða svo, +og á við hina suma tvo. + +Hafðu, bóndi minn, hægt um þig! +Hver hefur skapað þig í kross? +Dýrðin vor þegar sýnir sig, +þér sæmir bezt að lúta oss. +Á alþinginu áður var +ekki neitt, nema höfðingjar. +Bíddu nú við og sjáðu senn: +Svona á það að verða enn. + +Taktu nú ekki orð mín samt +sem illu gamni fagni ég, +þegar að svo af skornum skammt +skýlaus rétturinn kemst á veg. +Hefndardagurinn eftir er, +"en enginn veit, nær þetta sker". +Samt sem áður held ég hitt, +hver muni seinast éta sitt. + +### BATTERÍSKI SYNDARINN + +Hæð veit ég standa, - +það var herborg áður +fleiri en fimm daga, +þars ég feiknstafi +flesta um leit +svalri sefströnd á. + +Harðan helgaldur +þá er um haf kominn +vindur á vogi blæs, +brimskafl bláfaldinn +buldri þungu +grenjar að grunnsteinum. + +Eitt var það undra, +er ég þar eyrum nam, +þá er næddi næturkul. +Ungbarns ópi +sem þess, er ófætt dó, +þótti mér hvert strá stynja. - + +Hví svo þrungin þú +þungu drepur +höfði moldu mót? +Hví þú in hárfagra, +hrelldum lík, +sóley, sólu flýr? + +Hvort þá svo harðráð +og heiftarfull +býr í brjósti lund +hræsvelg hrímþursa, +er í hvirfilbyl +fer of foldar jaðar? + +Var það ei ærið, +er þú áður felldir +sólu borið blóm, +þótt ei saklausu +síðan hingað að +feyktir þess frækorni? + +Illska, andstyggð +og óþoli, +örgust eiturjurt, +grær hér í grasi, +unz guðs veður +fellir þau fullvaxta. + +Syrgir nú einmana +ið unga blóm, +runnið í reit lasta. +Hörðum huga +hatar sól og vind +fyrir tilveru tíma. + +En, Bergur, þú, +sem und bjargstórum +syndaþunga þreyr, +höfði hnarreistu +- svo er hjartað blint - +apast að óheillum. + +Saklaus blóm, +þau er ei synd þekktu, +felast fyrir þér, +þars þú glaður +þeim, er gabbað fékkst, +mætir að munaði. + +Ómar mér í eyrum +þitt eymdakvein, +er hörðum heldróma +sveiptur sárlega +um seinan vaknar +fyr nágrindur neðan. + +Illar nöðrur, +þær eð æ vaka, +sárt á sálu bíta. +Þannig vaknar +sá, er í villu svaf. +Æ koma mein eftir munað. + +### SKRADDARAÞANKAR UM KAUPMANNINN + +Þú, sem daglega líða leið +lífs fram að enda sér, +náungann svíkur samt, um skeið +sama gleyminn að fer. +Þinn spillti þanki er +þreföldum gróða-fjötur-svefni bundinn. + +Í léttu rúmi liggur þér, +þótt líðir sálar tjón. +Ágirnd fíkin, sem brjóst þitt ber, +blindar svo hjartans sjón, +magnaði mammons þjón, +munaðarlausu ekkjuna sem grætir. + +Vertu ekki að huga í vettling þinn, +hann verður fullur senn. +Þarna vantar í þumalinn, +því mega borga enn +skapþungir skilamenn +skuldina lognu á svikatöflu þinni. + +Fátæktartár á frómri kinn +feginn þú renna sér. +Að hrekkjum þínum hálfgrobbinn +hlærðu sem von til er. +En óbænum árnar þér +auminginn svikni sárt og hyski þínu. + +En hvergi hér um hirðir þú, +huggun þín gjaldið er. +Þitt öfundaða aurabú +aldrei samt gleði lér, +enn þótt um eyrun þver +á þér rangfengna dalahrúgan klingi. + +Værir þú skynlaus, grimmur ger, +getinn á villustig, +og allt, sem fyrir augun ber, +eyðimörk skuggalig, +enginn áteldi þig, +sem öngvan þekktir guð, og boðorðslausan. + +Hitt er undur, hve upp vex nú +illgresi á kristnri grund. +Frómlynda landsmenn flettir þú +fé sínu hverja stund. +Klækin er kaupmanns lund, +kæta hana andvörp föðurleysingjanna. + +Drottinn bauð, - eitt sinn dynja fer +dómslúður skýjum í. +Hve mun þá dygð þín hrósa sér? +Hvort muntu sleppa frí? +Magnlausa moldar þý! +Muntu þá gulli guðdómsveldið sigra? + +### KVÖLDDRYKKJAN + +Gelur nú gleði +við glasmunna, +dunar fjöl +und fæti gljáum, +gengur roka +með rokna blæstri +níðings nösum frá. + +Brettar eru brýr, +bendist ofurmjög +kátur kúluvambi. +Rymur rámur háls +af rembilæti. +Það er kaupmanns kunn. + +Strax er stafs vant, +er af stað færist, +fara hendur í hlaði. +Enni það, er áðan +að ölbollum +laut, er leirugt allt. + +Mælir þá munnur, +þótt mál þvæli: +"Veit ég vínkaup +verst í heimi. +Gjalds er vant +við gleði vora. +Skal það bændum +af baki fláð. + +End ekki orð þín +né ummæli. +Það er gömul +gróðaregla. +Sú er og önnur, +þótt örðug sé: +Stel ekki svo +að stóru nemi. + +Sefur samvizka, +svæfði ég hana, +svo hún aldrei +um aldur vakni. +Sá var ormur +óduglegum +vörusölum +verst um gefinn". + +Baulaði þá, +brá upp grönum, +þjór þverhöfði, +er á þambi stóð, +um fætur hins +að foldu hrotinn: + +"Orm þann, orm þann, +óduglegum +vörusölum +verst um gefinn, +samvizku, seldi eg +við silfri fyrr. +Henni varð ekki +varið betur". + +### GALDRAVEIÐIN + +Hvað mun það undra, +er ég úti sé, - +þrúðgan þrætudraug +um þveran dal +skyndilega +skýi ríða? + +Svartir eru möskvar, +sígur með hálsi fram +slunginn þrætuþinur. +Sé ég á dufli +dökkum stöfum +E. T. illa merkt. + +Ertu, afi, +endurborinn +og ferðu kvikur að kynngi? +Illar stjörnur +veit ég yfir þig +ganga grimmlega úr ginu. + +Hættu! hættu! +áður að hálsi þér +sjálfum verði snara snúin, +því sá varð fanginn, +er und fossi hljóp, +lax inn lævísi. + +### GRENIÐ + +Komið er að dyrum, +kallað er úti, +skotmaður spyr: +Er skolli heima? +Lambsfót sé ég liggja +og legg úr sauði, +ræfil af rjúpu. +Reiður er ég þér! + + +Tófa inni fyrir: + +Heima segi eg mig. +Heill og sæll, vinur! +Gestur inn göfugi, +gakk nú til stofu. +Dyr eru lágar, +dimmt er í húsi +fáráðs frumbýlings. +Fyrirgefðu það. + + +Skotmaður: + +Út er að ganga +og undir renna +vopn voveifleg +og að velli falla. +Báðu mig bændur +belg þinn að hrjá +og blóðdrekki +að bana verða. + + +Tófa: + +Annt er mér inni +í ofan hrundum +urðar hóli, +orpnum moldu. +Margs ber að gæta +móður ungri +sona fjögra +og sex dætra. + +Ein sit ég inni +og annast hlýt +kafloðna hvolpa +í krá dimmri. +Hlaupa þeir um holur, +hrökklast þeir í gjótur, +steðja þeir um steina, +stunda á útkomu. + +Höfuðlaust heita +heimili má, +er bóndinn er +á burtu genginn. +Rann refur minn +til rjúpnaveiða, +búi sínu +bjargir að fá. + +### AUGUN ÞÍN (Brot) + +Kærðu þig ekki neitt um neitt, +þó nú sé farið að verða heitt. +Brenndu mig upp til agna. + +Augun raunar eru þín, +upplitsbjarta stúlkan mín, +hitagler, ef hlýna. +Sólargeislum innanað, +eg er búinn að reyna það, +safna þau, svo brímabað +brennir vini þína. + +### ÚR KVÆÐI UM VÍKINGAFERÐIR + +R.: + +Seg oss lengur sögu. +Sælt er á að hlýða +þrautafarir þínar, +þrekverk öll að vita, +meðan sólin sígur +sæl í djúpar unnir +og á heiðum himni +hvítur lýsir máni. + + +Á.: + +Skemmtir það litlu lambi, +líti það varga bítast? + + +R.: + +Ojú, Ásmundur, +ef það stendur +óhult innangarðs. +Óhultur nú +héðan af ertu, +því héztu mér, +aldrei að velkjast +í víkingu framar. + +### Í ÖXNADAL (Brot) + +Þar sem háir hólar +hálfan dalinn fylla, +þar sem hamrahilla +hlær við skini sólar + +árla, fyrir óttu, +ennþá meðan nóttu +grundin góða ber +græn í faðmi sér. + +### PHYSICA NECESSITAS + +Má-at inn megin- +máttki guð +vindi valda, +þeim er fer vog yfir, +né um varnað fær +vetrarstundum, +þeim er í árdaga +áður skóp. + +### VORVÍSUR + +Vorið góða, grænt og hlýtt, +græðir fjör um dalinn. +Allt er nú sem orðið nýtt, +ærnar, kýr og smalinn. + +Kveður í runni, kvakar í mó +kvikur þrastasöngur. +Eins mig fýsir alltaf þó +aftur að fara í göngur. + +### FYRSTU VÍSURNAR (ortar á barnsaldri) + +1. Ég á þessi föt + +Buxur, vesti, brók og skó, +bætta sokka, nýta, +húfutetur, hálsklút þó, +háleistana hvíta. + + +2. Mál er í fjósið + +Mál er í fjósið! Finnst mér langt. +Fæ ég ekkert oní mig? +Æi, lífið er svo svangt. +- Enginn étur sjálfan sig. + +### LÍKUR SÍNUM + +Allt hef ég af öfum mínum, +illt er að vera líkur sínum, +annar kvað og annar saup. +Ég á að heita barnið beggja, +búinn að stökkva hvorutveggja +grárra manna Grettishlaup. + +Ólukkinn skal yrkja lengur, +enginn til þess finnur drengur, +og þó miklu minnur fljóð. +Ólukkinn skal oftar súpa. +Eg er fótaloðin rjúpa. +Plokkið þér mig nú, Gunna góð! + +### HELVÍTI + +Mér finnst það vera fólskugys +að fara niður til helvítis +og eyða aldri sínum +innan um brennu illan geim, +ólíkan drottins sólarheim, +svo hrollir huga mínum. + +Skötubarðvængjuð fjandafjöld +flaksast þar gegnum eilíft kvöld, +glórir í glóðir rauðar. +Þar er ei nema eldur og ís. +Allt í helvíti brennur og frýs, +Satan og sálir dauðar. + +### SKÓLAGLETTUR + +Um Benedikt Scheving + +Benedikt Scheving skæður, +við skötuhryggja glæður +á kakalón klakinn út +úr eitruðu hanaeggi, +ekki er furða, þó leggi +lykt af þér eins og lút. + + +Cura til Magnúsar Fraters + +Magnús vinur, legg og lið +leggjum saman bæði. +Þú ert linur, færð þó frið +fyrir þolinmæði. + + +Til Búa Jónssonar + +Skeifi skollafótur, +skankalangi Búi, +leiði leppaþór, +- æði augnaljótur, - +enginn bið ég þér trúi, +kauði kampastór! +Þrumir þú í hanabjálkahreysi, +Hræsvelgur um telgda fjöl þó geisi, +vappa tekur Valgerður með keisi. +- Vont er, að sitji fleiri en einn á meisi. + + +Hjörleifs reiði + +Hjörleifs reiði ríður mér á slig. +Svo ég fjúki ei flatur út í haga +fyrstu átta hvassveðursins daga, +Öxndælingar á mig reyri sig. + +* + +Ef hann sendir engla mergð +einum móti skratta, +andskotinn fer fýluferð +og fjóra missir hatta. + + +Sníkjudallurinn + +Hérna er ótækt heima að sníkja. +Helzt mun því ráð á Nesið víkja, +þar er svo mikill maturinn. +Komist ég það með kröftum slökum +af curu, sulti og næturvökum, +ég skal heita á þig, magi minn! + + +Staka + +Skjambi meður skollanef, +skrýtilegi frændi minn, +hefðirðu líka rófu af ref, +Robbur keypti belginn þinn. + +### DALABÓNDINN Í ÓÞURRKNUM + +Hví svo þrúðgu þú +þokuhlassi, +súldanorn, +um sveitir ekur? +Þér mun ég offra +til árbóta +kú og konu +og kristindómi. + +### LÆKNIRINN + +"Hér sé friður! Með heilsu þín, +hvernig gengur?"... "O, ég held ver. +Höfuðverkur og hóstapín +hafa svo dregið kraft úr mér". + +"O jæja. - Og það er heldur hart, +hvernig útreið að Tyrkinn fær. +Það er mannhatur mestan part, - +mikið er Rússans grimmd frábær!" + +"Svo get ég ekki sofið vel, +svíður brjóstið, ef hræra skal". +"Ja, so? - Og víst mun Emanúel +ofan á verða í Portúgal". + +### SKIPKOMA (1830) + +Við Lárus (Sigurðsson) biðum skipkomu og leiddist eftir bréfum vina okkar í Höfn. Sumardagsmorguninn fyrsta var ég snemma á fótum og sá kaupfar undir uppsiglingu. Þegar ég kom heim, spurði L., hvort "skáldið" hefði ekki séð skip. + +"Sér ei skáldið skip á öldu +skautum búið að landi snúa? +Er ei þys við þorskakasir? +Þóttast ekki búðadróttir?" +"Harður byr að hafnavörum +húna rekur jóinn lúna. +Glatt er lið á götustéttum, +glápa sperrtir búðaslápar". + +### ÓSKARÁÐ + +Vinnukona kvartaði um, að hún fengi ekki þjónustukaup + +Ég skal kenna þér að þjóna +þrælnum fyrir ekki neitt. +Settu fyrst upp svarta skóna, +svo hann fari á þá að góna, +gerðu honum síðan helið heitt. + +Ef hann mýkist ei á þessu, +eins og stundum verða kann, +farðu þá sem fyrst til messu, +færðu þig í "bombasessu"- +kjólinn þinn og kveddu hann. + +En, ef færðu ekki taman +annað hann við ráðið þitt, +þvoðu þér þá fyrst í framan, +farðu svo úr öllu saman. - +Það mun heppnast, hróið mitt! + +### TIL BRYNJÓLFS PÉTURSSONAR + +Mér er glatt í geðinu mínu, góðkunningi. +Í huga datt mér hátt að syngja +og hörpuskrattann láta klingja. + +Ég veit þú býrð í hefðarháu heppnisstræti +og hálfu öðru hundrað götum, +hafandi nóg af mat og fötum. + +Samt að bjóða þori ég þér af þagnarlandi +- og líklega með mér sjálfum senda - +staklega nettan vísuenda. + +Mansöngshjali hætti eg nú, því höfuðið titra +á mér fer af orðum vitrum, +sem ólmast fram úr þankakytrum. + +* + + Ég með göldrum get að sjá + grundar völdu smíði, + jarðar öldrum innan frá + oft á kvöldum verð ég þá. + + Sagt er, að skitu Sauríar, + sundur bitu stikla. + Seinna litu þegnar þar + þetta dritið mikla. + + Þar af ráða mengið má + muni láðin þengla + guðs fyrir náð í gömlum sjá + geymd að ráðum engla. + + Hreyfði sporðinn, fór á flug + úr flæðum þorði svamla. + Nú er hún orðin ómáttug + ættarstorðin gamla. + + Þó skal greina þessu frá, + þundur fleina mætur, + náttúrusteina að hún á, + eru það meina bætur. + + Kímur af fleó, karlinn minn! + krímur af Leó hrósi, + grímur af reó rek ég inn, + rímur af Geógnósi. - + + Orðin flugu fjaðralaus + fram af þagnarranni, + sem að smugu úr sálardaus, + sona er gagn í manni. + + Virtu hróður vel um sinn + í vænu ljóða smíði. + Þú ert, bróðir, meistari minn + og mikil óðarprýði. - + + Hlaupa fer um Hafnarslóð + Hallgrímsarfa kundur + eins og mjólk og meyjarblóð. - + Mikil heimsins undur! + + Einatt hef ég átt við skarn, + ekið á völl og legið á slóða, + rekið á fjöll og búið til barn, + blessaður, góða hringatróða! + +### AFMÆLISVÍSUR TIL BRYNJÓLFS PÉTURSSONAR + +Við, sem annars lesum lögin +og lítil höfum vængjaslögin, +opna gerum hróðrarhauginn, - +Herjansuglan sat þar hjá. +Fagurt galaði fuglinn sá. +Síðan kvæða sendum drauginn +séra Péturs kundi. +Listamaðurinn lengi sér þar undi. + +Sá hann eitt sinn sitja á ljóra, +svo sem gerði bólan stóra, +ofurlítinn nöldursnóra, +sem naktar voru klærnar á. +Fagurt galaði fuglinn sá. +Hann hugðist gera gys að Móra, +en greip í skott á hundi. +Listamaðurinn lengi sér þar undi. + +Fýsi þig að frétta meira, +freilich kann ég segja fleira: +Uppi í háum hamrageira +honum skruppu tærnar frá. +Fagurt galaði fuglinn sá. +Hann hékk þar sona á hægra cyra, +hvergi frá eg hann stundi. +Listamaðurinn lengi sér þar undi. + +### TIL KONRÁÐS GÍSLASONAR + +Niðurlag á bréfi + +Veit ég það fyrir vissu nú, +veður færðu eða gamalkú +hjá henni Höllu minni +út úr þessari orlofsferð, +sem upp á hennar náð er gerð, +gikkur í gömlu skinni! + +Þegar þú kemur kotið á, +sem Kreischu liggur út í frá, +neðan við háa hólinn, +viltu þá ekki vita, hvurt +Vigga mín hefur að mér spurt, +sem að ég sá um jólin. + +Andlitin þýzku eru mér +engu síður en brauð og smér +í fardögum fyrir norðan, +- gott eiga sumir gæfumenn, +guð veit, hvort að þú manst það enn - +þegar að þrýtur forðann. + +Eins bið ég þess, ef áin Rín +upp er stigin á fætur þín, +fljúgðu þá fjöllum hærra, +komandi hingað heim um sinn. +Hérna, rétt strax við kaupstaðinn, +er vatnið víni tærra. + +Froskarnir vaxa fjögur ár - +fárlega ertu í slíku dár, +bið ég þér bóta þriggja, +og lifa nærri eins lengi og þú. +- Lagleg hefur hún verið sú!"- +Engin vill undir liggja. + +Hvort sem að ég líð bót eða böl, +bláa loft eða vítis kvöl, +vaðandi á vonarhausti, +samt er ég alltaf eins fyrir því, +aumingja, svarta dírrindí! +samur, + + þinn + +séra Trausti. + +### BORÐSÁLMUR + +Forsöngvarinn: + +Það er svo margt, ef að er gáð, +sem um er þörf að ræða. +Ég held það væri heilla ráð +að hætta nú að snæða. + + +Fólkið: + +Heyrið þið snáða! +Hvað er nú til ráða? +Það mun bezt að bíða +og hlýða. + + +Forsöngvarinn: + +Á einum stað býr þrifin þjóð, +með þvegið hár og skjanna, +við húsbændurna holl og góð, +sem hundrað dæmi sanna. + + +Fólkið: + +Hvað er að tarna? +Hvað sagðirðu þarna? +Mættum við fá meira +að heyra! + + +Forsöngvarinn: + +Mér hefur verið sagt í svip, +að sig hún taki að ygla +og ætli nú að eignast skip, +þótt enginn kunni að sigla. + + +Fólkið: + +Við litlu má gera, +látum svona vera. +Þeir ýtast þá með árum +á bárum. + + +Forsöngvarinn: + +Nú eru líka níu menn, +sem nóttina eiga að stytta, +þó varla nokkur viti enn, +hve vænlegt ráð þeir hitta. + + +Fólkið: + +Segðu ekki lengur! +Seinna veit, hvað gengur. +Mættum við fá meira +að heyra! + + +Forsöngvarinn: + +Á einum stað býr einnig fólk, +sem alltaf vantar brýni. +Það lifir þar á mysu og mjólk, +en mest á brennivíni. + + +Fólkið: + +Æ, hvaða skrambi! +Ætli þeir standi á þambi? +Mættum við fá meira +að heyra! + + +Forsöngvarinn: + +Þar hefur verið sofið sætt, +en sungið nokkru miður, +og ullin fremur illa tætt, +en allra bezta fiður. + + +Fólkið: + +Ætli það sé undur, +þótt á þá renni blundur! +Mættum við fá meira +að heyra! + + +Forsöngvarinn: + +Þar eru blessuð börnin frönsk, +með borðalagða húfu, +og yfirvöldin illa dönsk +á annarri hverri þúfu. + +Fólkið: + +Hættu nú, herra, +hér mun koma verra, +sem þér er betra að þegja um +en segja um. + +### SÉRA BESSI + +Bessi á sér berhross, +breiðir snoturt áreiði, +gæsarham, og guðvís +getur fettur rétt setið, +skeiðar svo, og lífs leið +lýðum kennir dag þenna. +Gumar, sem hans gabb nema, +grýtast til helvítis. + +### VALDI + +Valdi, virztu nú halda +vel mér í stél, séra! +Ég skal gefa þér afar +ætilegt sælgæti: +lambasteik, svo þér líki, +ljómandi skyr og rjóma, +Valdi, viljirðu halda +vel mér í stél, séra! + +### BÓSI + +Bósi, geltu, Bósi minn, +en bíttu ekki, hundur! +Ella dregur einhver þinn +illan kjaft í sundur. + +Hafðu ekki á þér heldra snið +höfðingja, sem brosa, +en eru svona aftanvið +æru manns að tosa. + +### SPARNAÐUR + +Eg er kominn upp á það, +allra þakka varðast, +að sitja kyrr í sama stað, +og samt að vera að ferðast. + +Ef enginn talar orð við þig, +- á það skylduð hlýða! - +þá er að tala við sjálfan sig, +og svo er um það að ríða. + +### HALLGRÍMUR VESLINGUR + +Halli vesli, heyrðu mér, +hér er ég með busa +og ætla að sníða eyra af þér +eins og Malakusa. + +Holur lækur grefur gróf, +grynnist flæður hafin. +Veit ég öngan verri þjóf +en Vesling bólugrafinn. + +Þegar hangir Hallgrímur, +hrafnar snauðir skoppa: +"Heimskur búkur, hangdu kjur!` +- og hætta í þig að kroppa. + +Uppgangsfífl, sem áður var, +allt í flærð og prettum, +heimskur búkur hangir þar, +hrafna gæddur slettum. + +### RÍMNASTÆLINGAR + +Meyjarhjarta + +Yndis bezta elskan mín, +ástum festa baugalín! +Hjartað góða þekki eg þitt, +það er ljóðaefnið mitt. + +Það er hreint sem bregði blund +blómstur seint um morgunstund, +djúpt sem hafið heims um hring +heitri kafið tilfinning. + +Það er gott, sem gaf það þér +guð, og vottinn hans það bar, +engum skugga á það slær, +auma huggað bezt það fær. + +Það er hlýtt af ástaryl, +öllum blítt og mest í vil. +Logann ól það elskunnar +undir skjóli miskunnar. + +Það í heima horfir tvo, +huganum sveima leyfir svo, +það er gefið og þó sig á. +........ + + +Rímnaerindi + +Vona ég dúna dreka lín, +á Dáins fleyi náms um haf, +við gullhúna hengi fín +hýruþvegið náðartraf. + + +Nýhenda + +Er hann að syngja enn sem fyrr, +arnarvélið sá hann - attan: +"Klingling" hringja kleprarnir +við karlinn hélugráan - skrattann. + +### HÁRIÐ + +Fagurljósa lokka safni, +litla Rósa! +þínu hrósa hafnanafni * +helzt nam kjósa. + +Móinsbóla morgunsólu +mærð að góla, +tel ég ólag eftir jól +og utan tóla. ** + +* Hafnanafni er sjálfkenning, eins og séra Eiríkur heitinn í Vogshúsum myndi hafa búið hana til, og þýðir einhvern fjörð, svo sem Breiðfjörð, Hestfjörð, Skötufjörð, Fáskrúðsfjörð eða Arnarfjörð, o. s. frv. - Eins vel hefði mátt standa hrafnajafni = "kramsi" (samanber Tristransrímur) Svona má sjá, hvernig skáldin geta velt orðunum fyrir sér. + +** Ég bið forláts! Þetta erindi er svo gott sem stolið allt úr eldri mansöngvum. + +### VÍSUR OG KVIÐLINGAR + +Um stúlku, sem reið með skugghatt + +Æ, hvað níðir svanna sá +Satans hattur ljótur! +Undir honum er auðargná +eins og bullufótur. + + +Marsvínareksturinn +(Sem reyndar voru steinar) + +"Missum ei það mikla happ, +maginn kann þess gjalda!" +Heldur var í körlum kapp, +þeir köstuðu grjóti, - ekkert slapp. +Samt mun Hallur hlutnum sínum valda. + + +Kveifar + +Dönum verður hér allt að ís. +Undir eins og dálítið frýs +botnfrosinn belgur hver +kúrir, þar sem hann kominn er, +kútveltist og formælir sér. + + +Niðurlagorð úr bréfi frá Höfn + +Efnið fór, og andann þraut, +ekki er hægt að tala. +Við erum allir orðnir naut, +einn hefur horn og hala. + + +Verzlunarólagið + +Íslendingurinn ætla ég sé +illa fær til að "drífa handel", +þótt sumir heiti Xavier, +sumir Höjsgaard, Herman, Peer og Wandel. + + +Fingurbjörgin + +Á ég mér kvæða efni mörg, +- þótt engum manni fríum. - +Ég réðist í að reisa hörg, +regin, yður og díum, +sem eilíflega eruð fjörg +og á það setið dæmaförg, - +en þessi fagra fingurbjörg +flytur mig ofar skýjum. + + +Málsvörn + +Feikna þvaður fram hann bar, - +fallega þó hann vefur. +Lagamaður víst hann var, +varði tófu refur. + + +Um Mosfellinga + +Bóndinn situr á bæjarstétt, +bindur hann reipi, hnýtir hann hnúta. +Heyið er upp í sæti sett, +konan ætlar að kaupa sér fyrir það klúta. + + +Skáldið mitt + +Skáldið mitt var skjótt í leik, +skauzt úr eldhúss brælu +líkt sem flygi langt frá reyk +ljóss í veldis sælu. + + +Úr bréfi til Konráðs + +Þetta blað er strax í stað +stílað til þess og sett á vess, +að beri það í bæjarhlað +bragnar Ness til Jóhanness. + +Nóta: Nes á að vera sama og Kaupmannahöfn, en Jóhannes sama og Konráð. Skáldaleyfið er tekið sér vegna rímsins.